Heilbrigðisþing 2025
Haldið fimmtudaginn 20. nóvember kl. 9.00 – 16.00 á Hótel Hilton Nordica
Dagskrá þingsinsFrá Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra
Boðað er til heilbrigðisþings ársins 2025 sem ég hef ákveðið að verði helgað heilbrigðistengdri endurhæfingu.
Endurhæfing er mjög mikilvægur hluti af heilbrigðisþjónustu við landsmenn og kannski mikilvægari en margir gera sér grein fyrir. Viðfangsefnið er víðfeðmt því endurhæfing getur snúið að margvíslegum heilbrigðisvanda fólks. Það kallar á fjölbreytt endurhæfingarúrræði sem sniðin eru að ólíkum þörfum. Þessi veruleiki á örugglega þátt í því hvernig endurhæfingarþjónusta á Íslandi hefur byggst upp og þróast í áranna rás. Mörg þeirra endurhæfingarúrræða sem sett hafa verið á fót hafa orðið til að frumkvæði öflugra félagasamtaka til að bregðast við þjónustu- og stuðningsþörf ákveðinna sjúklingahópa. Margt hefur verið mjög vel gert í þessum efnum en það sem helst hefur skort er heildaryfirsýn yfir þjónustuna og skýr stefna hins opinbera í málefnum endurhæfingar á landsvísu.
Ég tel verk að vinna í þessum efnum og því ákvað ég í upphafi árs að ýta úr vör vinnu við gerð hvítbókar um endurhæfingarþjónustu innan heilbrigðiskerfisins og að helga Heilbrigðisþing 2025 endurhæfingu. Markmiðið hvítbókar er að efla og skýra kaup hins opinbera á endurhæfingarþjónustu innan heilbrigðiskerfisins þar sem markmið og árangur þjónustunnar verða í forgrunni með samfellda þjónustu að leiðarljósi. Drög að hvítbókinni verða birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda skömmu fyrir heilbrigðisþingið þar sem þau verða jafnframt kynnt og rædd.
Á þinginu verður farið stuttlega yfir sögu, þróun endurhæfingar á Íslandi og fjallað um stöðu hennar í dag. Uppstilling þjónustukeðjunnar, snemmtæk íhlutun, samræmt mat á endurhæfingarþörfum og gagnreyndar árangursmælingar verða einnig til umræðu. Síðast en ekki síst verður horft til framtíðar og ræddar ýmsar áskoranir sem sjá má fyrir, m.a. vegna lýðfræðilegrar þróunar og hvernig megi takast á við þær sem best.
Ég get lofað ykkur áhugaverðri dagskrá á heilbrigðisþinginu 2025 og hvet ykkur sem starfið við endurhæfingu, hafið áhuga á endurhæfingu, hafið reynslu af endurhæfingu eða viljið fræðast um endurhæfingu til að mæta.
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra
Fyrirlesarar
Anna-Sofia Bengtsson
Anna-Sofia Bengtsson is an occupational therapist with an MSc in sexology. She works as the sexologist in the digital team at Cancer Rehabilitation Scania Online (CRSO), in southern Sweden, which provides interdisciplinary cancer rehabilitation. The entire rehabilitation process is delivered digitally through video tools and interactive digital platforms.
Anna-Sofia was part of the core group that developed the clinical guidelines in 2022, before launching CRSO in early 2023. Since its start, CRSO has received excellent feedback from patients, healthcare partners, and patient representatives. The key idea is that digi-clinical care should never be a “second-best” option – it should be just as effective and person-centred as on-site rehabilitation, if not better.
Digi-clinical interdisciplinary cancer rehabilitation – experiences from Sweden: Anna-Sofia will discuss how a rehabilitation process can be fully or partly digitalised. She will share practical insights, lessons learned, and some of the key “dos and don’ts” from their experience building a 100 % digital rehabilitation process that is adaptable to any rehabilitation setting.
Árdís Björk Ármannsdóttir
Árdís er endurhæfingarlæknir og framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi. Árdís lauk sérnámi í endurhæfingarlækningum í Svíþjóð og starfaði sem yfirlæknir og við stjórnun við Södra Älvsborgs Sjukhus i Borås fram til ársins 2023. Þaðan hefur hún reynslu af innleiðingu og vinnu með alþjóðlega gæðavottunarkerfið CARF (Commission on Accreditation of Rehabilitation Facilities) í endurhæfingu.
Gæðavottun í endurhæfingu - ávinningur og áhrif? er yfirskrift erindis Árdísar þar sem hún mun fara yfir innleiðingu CARF gæðavottunarkerfisins á Reykjalundi, áhrif og ávinning þess fyrir starfsemina og hvað það þýðir að vera með vottaða endurhæfingarþjónustu. Reykjalundur hlaut í ár þriggja ára CARF gæðavottun á endurhæfingarþjónustu sinni og uppfyllir þar með alþjóðlega viðurkennda gæðastaðla í endurhæfingu. Markmið CARF er að tryggja að þjónustuaðilar uppfylli ströng fagleg gæðaviðmið og bæti stöðugt þjónustu sína. Gæðavottun gegnir lykilhlutverki í því að tryggja gæði, öryggi og fagmennsku í heilbrigðisþjónustu.
Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir
Guðrún lauk sérnámi í lyf- og innkirtlalækningum frá Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg og doktorsprófi frá Gautaborgar háskóla um meðferð við offitu. Starfaði á sykursýkis- og offitumóttökunni á Sahlgrenska sjúkrahúsinu til 2023 og flutti þá heim til Íslands. Er yfirlæknir á efnaskipta- og offitusviði Reykjalundar og aðjúnkt við Læknadeild HÍ.
Endurhæfing einstaklinga með offitu er yfirskrift erindis Guðrúnar þar sem hún mun fjalla um áherslur og áskoranir í endurhæfingu einstaklinga með offitu. Hvað felur sú endurhæfing í sér og hvernig er staðan á Íslandi í dag? Lögð verður áhersla á mælingar, árangursmat og meðferðarmarkmið í endurhæfingu sem og langtíma eftirlit.
Héðinn Jónsson
Héðinn Jónsson vinnur að þróun og innleiðingu heilbrigðistækni með það að markmiði að bæta þjónustu og nýta auðlindir skynsamlega. Hann brennur fyrir því að styrkja einstaklinga til að viðhalda færni í daglegu lífi þar sem hagkvæmni og notagildi ganga hönd í hönd við bætt lífsgæði. Héðinn er forstöðumaður þróunar hjá Helix. Hann er sjúkraþjálfari og heilsuhagfræðingur sem hefur unnið í 20 ár í heilbrigðistækni bæði hér heima og erlendis.
Endurhæfing óháð staðsetningu er yfirskrift erindis Héðins: Framtíð endurhæfingar felst í því að hún sé óháð staðsetningu þar sem gögn fylgja einstaklingnum og hann sjálfur stýrir för. Með stafrænum lausnum geta sjúklingar tekið virkari þátt í meðferð, fylgst með framvindu og haldið áfram endurhæfingu í sínu daglega umhverfi. Með gagnadrifinni nálgun skapast tækifæri til að veita rétta þjónustu á réttum tíma, mæla árangur og forgangsraða á skilvirkan hátt í heilbrigðiskerfinu.
Kristján G Guðmundsson
Kristján G Guðmundsson er formaður Félags endurhæfingarlækna. Hann lauk embættispróf í læknisfræði frá Háskóla íslands 1986 og varði doktorsritgerð við sama skóla árið 2001. Hann hefur starfað víða við endurhæfingu, svo sem á Heilsustofnuninni í Hveragerði, hjá Virk, á Reykjalundi og unnið fyrir Tryggingastofnun. Hann starfar nú á Verkjamiðstöð Landspítalans og endurhæfingarstöðinni Hæfi. Hann hefur starfað við ýmis verkefni, s.s. Hvert verkefninu, um starfsendurhæfingu frá heilsugæslu sem var samstarfsverkefni milli heilsugæslu, Vinnumálastofnunar, Tryggingastofnunar, og félagsþjónustu sveitarfélaganna. Kristján brennur fyrir jöfnu aðgengi allra sem þurfa endurhæfingu og leggur áherslu á að það verði ekki gert nema með samvinnu, samhæfingu og skýrum verkferlum í endurhæfingu á Íslandi.
Saga endurhæfingar, þróunin í gegnum árin og framtíðarsýn verður umfjöllunarefni Kristjáns á þinginu.
Magdalena Ásgeirsdóttir
Magdalena lauk embættisprófi í læknisfræði 1993 frá læknadeild Háskóla Íslands og Diploma in Tropical Medicine and Hygiene frá London School of Hygiene and Tropical Medicine 1998. Hún stundaði sérfræðinám á Sahlgrenska háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg og lauk þaðan sérfræðinámi í lungnalækningum 2005.
Magdalena starfaði á Reykjalundi árabilið 2006-2021 ásamt því að stunda nám í endurhæfingarlækningum og hlaut sérfræðiviðurkenningu sem endurhæfingarlæknir 2019. Hún hóf störf á Grensásdeild Landspítala í janúar 2022, fyrst sem sérfræðilæknir og yfirlæknir frá 1. nóvember 2023. Hún mun fjalla um endurhæfingu á spítalanum, áskoranir og tækifæri til framtíðar.
Nenad Kostanjsek
Kostanjsek starfar hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) og er tengiliður (focal point) fyrir WHODAS og ICF flokkunarkerfið. Hann mun fjalla um tækifæri til samþættingar í endurhæfingu með aukinni notkun ICF flokkunarkerfisins við skráningu, mat og árangursmælingu í endurhæfingu (nánari upplýsingar væntanlegar).
Svanbjörg Berg Sigmarsdóttir
Svanbjörg er sviðsstjóri á endurhæfingarsviði TR, en vann áður sem sérfræðingur í endurhæfingarteymi TR frá árinu 2017. Hún lauk MA gráðu í félagsráðgjöf til starfsréttinda árið 2016 frá Háskóla Íslands.
Nýtt endurhæfingarkerfi er yfirskrift erindis Svanbjargar. Hún mun fjalla um þróun endurhæfingar í gegnum árin, þar sem áhersla hefur verið á endurhæfingu til að koma í veg fyrir ótímabundna örorku. Einnig verður farið yfir breytingarnar á endurhæfingarkerfinu sem tóku gildi 1. september 2025, þar sem byggt var meðal annars á hugmyndafræði ICF til að tryggja heildræna, samræmda og einstaklingsmiðaða nálgun.
Terrence Carolan
Terrence Carolan works with CARF International as Managing Director of Medical Rehabilitation and Aging Services. Terrence also has been a provider, manager, educator and administrator at Select Medical and Kessler Institute for Rehabilitation since 2001. He received a Bachelor of Science in Biology from The College of New Jersey, a Master of Science in Physical Therapy from Simmons University and a Master of Business Administration from University of Wisconsin, Eau Claire.
Leveraging Person-Centered Accreditation Standards and ICF Framework to Enhance Quality and Performance Improvement Across the Rehabilitation Spectrum in Iceland
Valgý Arna Eiríksdóttir
Valgý Arna útskrifaðist úr iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri 2011 og er með diplomu í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun. Hún hefur starfað á fjölbreyttum sviðum endurhæfingar m.a. á Grensás, endurhæfingardeild Eirar og hjá Reykjavíkurborg, sem teymisstjóri yfir endurhæfingu í heimahúsi. Þar kynntist hún fyrst WHODAS mælitækinu og lagði það fyrir skjólstæðinga á pappírsformi. Hún hefur unnið hjá Ljósinu í rúmlega ár og haft yfirumsjón með innleiðingu WHODAS 2.0 í rafrænu formi.
Innleiðing WHODAS 2.0 í Ljósið endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda: Í erindinu fjallar Valgý Arna iðjuþjálfi í Ljósinu um innleiðingu WHODAS 2.0 og hvaða áhrif matstækið hefur á starfsemina. Hún fer yfir hvernig hægt er að nýta niðurstöður matstækisins í rauntíma m.a. með áherslubreytingum í endurhæfingu og straumlínulagaðri þjónustu. Valgý Arna mun einnig ræða tækifærin sem árangursmælingar WHODAS 2.0 bjóða upp á hvað varðar þróun þjónustu Ljóssins og þá möguleika að nýta þær við rannsóknir í framtíðinni.
Vigdís Jónsdóttir
Vigdís Jónsdóttir er forstjóri VIRK-Starfsendurhæfingarsjóðs og hefur stýrt uppbyggingu VIRK frá upphafi í samstarfi við fjölbreyttan hóp fagaðila. Vigdís er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur einnig alþjóðlega gráðu í verkefnastjórnun auk menntunar í mannauðsstjórnun. Hún hefur starfað sem stjórnandi í atvinnulífinu í um 30 ár.
VIRK var stofnað árið 2008 og hafa um 27 þúsund einstaklingar leitað til VIRK á undanförnum 17 árum eða einn af hverjum tíu einstaklingum á íslenskum vinnumarkaði. Í dag eru um 3000 einstaklingar í þjónustu VIRK.
Fyrirlestur Vigdísar ber heitið „Að læra og þróast í síbreytilegu umhverfi“. Þar mun hún fjalla um þróun og breytingar hjá VIRK undanfarin ár og mikilvægi þess að þjónusta þróist í takt við þarfir samfélagsins á hverjum tíma. Auk þess mun hún koma inn á mikilvægi skýrrar framtíðarsýnar og aukins samstarfs innan velferðarkerfisins.
Vignir Sigurðsson
Vignir Sigurðsson starfar sem barnalæknir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU). Þar sinnir hann almennum barnalækningum á öllum heilsugæslustöðvum HSU ásamt rannsóknarvinnu í samstarfi við Háskólann á Akureyri. Vignir útskrifaðist frá læknadeild Háskóla Íslands 2011, sem sérfræðingur í barnalækningum frá Sahlgrenska háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg 2019 og lauk doktorsprófi í barnalækningum frá háskólanum í Gautaborg 2021.
Á HSU leiðir hann teymi hjúkrunarfræðinga og lækna sem hafa þróað verkefnið: Kraftmiklir Krakkar, lífstílsmóttaka fyrir börn með offitu og foreldra þeirra. Rannsóknarhluta verkefnisins er lokið og frekari niðurstöður liggja fyrir á næstu mánuðum. Innleiðing verklagsins og áframhaldandi lífstílsmeðferð fyrir börn er hafin á heilsugæslum HSU.
Offita barna á Íslandi - Áríðandi verkefni er yfirskrift erindis Vignis á þinginu.
Ólafur Helgi Samúelsson
Ólafur Helgi er sérfræðingur í lyf og öldrunarlækningum og framkvæmdastjóri lækninga á hjúkrunarheimilunum Eir, Skjóli og Hömrum. Hann hefur langa reynslu í starfi sem öldrunarlæknir bæði á Landspítalanum og á hjúkrunarheimilum og hefur tekið þátt í að byggja upp öldrunarendurhæfingarþjónustu utan sjúkrahússins.
Öldrunarendurhæfing! Hvað er nú það? er yfirskrift erindis Ólafs þar sem hann fer yfir eðli öldrunarendurhæfingar, fjallar um þvarfaglega vinnu í því sambandi og mikilvægi öldrunarendurhæfingar fyrir sístækkandi þjóðfélagshóp. Einnig fjallar hann um nauðsynlegt innihald slíkrar endurhæfingar, samvinnu milli stofnana og hvernig skýr skilyrði eru nauðsynleg til að úrræði og fjármagn nýtist sem best.
Pallborð fyrir hádegi
María Heimisdóttir
Í pallborðinu verður fjallað um stækkandi hópa, áskoranir og tækifæri. Stjórnandi pallborðs er María Heimisdóttir landlæknir. Þátttakendur eru Anna Björg Jónsdóttir öldrunarlæknir, Erla Gerður Sveinsdóttir heimilislæknir, Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinnsfélags Íslands, Friðbjörn Sigurðsson læknir Akureyrarklíníkurinna og Ingunn Hansdóttir sálfræðingur.
María Heimisdóttir
María lauk embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1990, MBA námi frá University of Connecticut 1997 og doktorsprófi í lýðheilsu frá University of Massachusetts árið 2002. María starfaði hjá Íslenskri erfðagreiningu frá árinu 1999 til 2003 og á Landspítala árin 2003 til 2018, meðal annars sem yfirlæknir hagdeildar og framkvæmdastjóri fjármála, auk þess sem hún leiddi þróun rafrænnar sjúkraskrár um árabil. María var forstjóri Sjúkratrygginga Íslands frá 2018 til 2022 og árin 2023-2024 starfaði hún sem ráðgjafi stýrihóps Nýs Landspítala ohf. fyrir heilbrigðisráðuneytið. Í framhaldi af því var hún ráðin yfirlæknir á upplýsingamiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og gegndi því starfi þar til hún var skipuð í embætti landlæknis í febrúar á þessu ári. Hún hefur einnig sinnt kennslu og rannsóknum samhliða öðrum störfum.
Anna Björg Jónsdóttir
Anna Björg er öldrunarlæknir og með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu. Hún er aðjúnkt við læknadeild Háskóla Íslands, hefur komið að skipulagningu framhaldsnáms lækna í lyf- og öldrunarlækningum á Landspítala og var fyrsti kennslustjóri sérnáms í öldrunarlækningum. Anna Björg hefur komið að og stýrt fjölmörgum þróunar- og gæðaverkefnum innan öldrunarþjónustu, tekið þátt í ýmsum nýsköpunarverkefnum og komið að rannsóknum á hrumleika og færniskerðingu eldra fólks bæði hér á landi og erlendis. Anna Björg var yfirlæknir á dag-, göngu- og samfélagsdeild öldrunarlækninga á Landakoti frá desember 2018 til mars 2021. Frá mars 2021 var hún verið yfirlæknir öldrunarþjónustu Heilsuverndar þar sem hún hefur m.a. komið að innleiðingu á heilsuvernd eldri borgara í heilsugæslunni. Frá ágúst 2022 hefur Anna Björg gengt stöðu yfirlæknis öldrunarlækninga Landspítala.
Erla Gerður Sveinsdóttir
Erla Gerður er heimilislæknir að mennt og með meistaragráðu í lýðheilsufræði. Hún hefur starfað sem sérfræðilæknir við offitumeðferð í rúman áratug innan heilsugæslu, á endurhæfingarstofnunum og í sjálfstætt starfandi rekstri. Hún hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum tengdu sínu starfi innan lands sem utan og meðal annars komið að gerð námsefnis, stefnumótun fyrir stjórnvöld og uppsetningu á nýjum þjónustuleiðum fyrir skjólstæðinga. Hún starfar nú í Heilsubrú hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og einnig í teymi samstarfsaðila hjá Mín besta heilsa.
Friðbjörn Sigurðsson
Friðbjörn lauk embættisprófi frá Læknadeild Háskóla Íslands árið 1986. Að loknum þremur árum í námsstöðum á sjúkrahúsum í Reykjavík hélt hann til Bandaríkjanna í frekara sérnám. Hann lauk sérnámi í lyflækningum og síðar í blóð- og krabbameinslækningum frá Yale háskólasjúkrahúsinu í New Haven, Connecticut, og hefur viðhaldið sérfræðiprófum sínum í Bandaríkjunum.
Friðbjörn hefur sinnt þjónustu við blóð- og krabbameinssjúklinga frá því hann fluttist aftur til Íslands árið 1996. Hann var formaður Læknaráðs Landspítala á árunum 2003–2007 og starfaði að undirbúningi nýs Landspítala árin 2007–2009. Árið 2013 varð hann fyrsti yfirlæknir almennra lyflækninga á Landspítala og gegndi síðar starfi framhaldsmenntunarstjóra lyflækninga í sjö ár.
Síðastliðin 15 ár hefur hann tekið þátt í að byggja upp þjónustu blóð- og krabbameinslækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Undanfarin ár hefur starf hans smám saman færst yfir í þjónustu við sjúklinga með ME og langvarandi einkenni Covid á Akureyrarklíníkinni.
Halla Þorvaldsdóttir
Halla Þorvaldsdóttir er sálfræðingur og vann sem slíkur á blóð- og krabbameinslækningadeildum Landspítala í mörg ár. Frá árinu hefur hún verið framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.
Ingunn Hansdóttir
Dr. Ingunn Hansdóttir er klínískur sálfræðingur og framkvæmdastjóri sálfélagslegrar meðferðar hjá SÁÁ. Ingunn lauk doktorsnámi í klínískri sálfræði í Bandaríkjunum við University of California, San Diego. Þar sérhæfði hún sig í samspili sálfræðilegra þátta við heilsufar og aðlögun að langvinnum sjúkdómum (behavioral medicine). Hennar starfsferill sem rannsakandi og dósent við Háskóla Íslands og sem klínískur sálfræðingur hefur beinst að langvinnum sjúkdómum á borð við fíkn og hvernig megi nota sálfræðilegar aðferðir til endurhæfingar.
Pallborð síðdegis
Í pallborðinu verður umræða byggð á umfjöllun dagsins og fjallað um framtíðarsýn, áskoranir og tækifæri á sviði endurhæfingar. Stjórnandi er María Heimisdóttir landlæknir. Þátttakendur eru Ágústa Kristín Andersen hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Takts endurhæfingar, Eyjólfur Þorkelsson, framkvæmdastjóri lækninga við Heilbrigðisstofnun Austurlands, Hans Jakob Beck lungnalæknir, Jónína Waagfjörð, sjúkraþjálfari og sviðsstjóri hjá VIRK og Berglind Gunnarsdóttir, sérnámslæknir og notandi endurhæfingar.
Ágústa Kristín Andersen
Ágústa Kristín Andersen er hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Takts endurhæfingar þar sem veitt er þjónusta ætluð fólki sem hefur fengið greiningu á Parkinsonsjúkdómi eða skyldum sjúkdómi.
Berglind Gunnarsdóttir
Berglind Gunnarsdóttir er sérnámslæknir og notandi endurhæfingar. Nánari upplýsingar væntanlegar.
Eyjólfur Þorkelsson
Eyjólfur Þorkelsson er sérfræðingur í heimilislækningum og framkvæmdastjóri lækninga við Heilbrigðisstofnun Austurlands. Nánari upplýsingar væntalegar.
Hans Jakob Beck
Hans Jakob Beck er lungnalæknir og lýðheilsufræðingur. Nánari upplýsingar væntanlegar.
Jónína Waagfjörð
Jónína er sjúkraþjálfari frá Háskóla Íslands og með meistaragráður í sjúkraþjálfun frá Boston University auk meistaragráður í heilsuhagfræði frá London School of Economics. Hún hefur starfað og kennt sjúkraþjálfun á Íslandi og í Bandaríkjunum en síðustu 13 árin hefur hún starfað hjá VIRK Starfsendurhæfingarsjóði og nú sem sviðstjóri yfir ráðgjöfum og atvinnulífstenglum VIRK og hefur tekið virkan þátt í þróun á þjónustum VIRK.
Dagskrá
Um heilbrigðisráðuneytið