Nýsköpun í heilbrigðiskerfinu - Nýsköpunarráðstefna

Um ráðstefnuna

**Alma D. Möller heilbrigðisráðherra og Logi Einarsson, menningar- nýsköpunar- og háskólaráðherra efndu sameiginlega til nýsköpunarráðstefnu um heilbrigðistæknilausnir og þjónustu á grundvelli þeirra í Grósku 1. október 2025. Markmiðið var að leiða saman haghafa til samtals um tækifærin sem felast í nýsköpun og nýjum lausnum í opinberri heilbrigðisþjónustu til að efla heilbrigðisþjónustu við landsmenn. Fjallað var um stöðuna eins og hún er í dag, um hönnun lausna til að mæta raunverulegum áskorunum, um innleiðingu þeirra, sjónarhorn sjúklinga o.fl.**Megináhersla ráðstefnunnar var á leiðir til að skýra umgjörð og farveg fyrir nýsköpunarsamfélagið til að þróa lausnir sem mæta þörfum heilbrigðiskerfisins. Einnig að skýra leikreglur, styrkja innviði og efla samstarf á þessu sviði með áherslu á að innleiða nýjungar á öruggan og skilvirkan hátt.

Dagskrá nýsköpunarráðstefnunnar

Upptökur

Kynningarsvæði

Í tenglum við ráðstefnuna kynntu tólf fyrirtæki og stofnanir sem vinna að nýsköpun í heilbrigðisþjónustu afurðir sínar og verkefni. Þetta voru Dala.care, Careflux, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Helix, Kerecis, Icepharma, Kara connect, Klak, Retinarisk, Landspítali, Miðeind og Öryggismiðstöðin.

Fyrirlesarar

Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni var Dr. Markus Lingman, prófessor og sérfræðilæknir sem deildi reynslu sinni af upplýsingadrifnum umbótum í sænska heilbrigðiskerfinu og innleiðingu gervigreindar í heilbrigðisþjónustu.

Einnig fluttu erindi Barry Katz og Schirin Lucie Richter, sem eru meðhöfundar bókarinnar *Healthcare by Design.*Katz er prófessor í hönnunar- og nýsköpunarsögu við California College of the Arts og Stanford háskóla. Hann er höfundur fjölda rita um hönnun, tækni og menningu. Schirin Lucie Richter er mannfræðingur með áratuga reynslu af nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og ráðgjöf við nýsköpunarfyrirtæki. Hún er meðstofnandi fyrirtækisins Future Medical Systems og sérhæfir sig m.a. í að tryggja upplifun sjúklinga við þróun nýrra lausna. Erindi þeirra fjallaði um hvernig hanna eigi lausnir til að mæta raunverulegum áskorunum í heilbrigðisþjónustu frá notendamiðuðu sjónarhorni. Áhersla Katz var á að miðla reynslu sinni af því að innleiða nýsköpunarlausnir í heilbrigðisþjónustu og hvers vegna oft virðist erfitt að innleiða nýjar og snjallar lausnir. Lucie Richter fjallaði um nýjar lausnir og mikilvægi notendamiðaðrar nálgunar, hvort sem litið er til þarfa þjónustuveitenda eða sjúklinga.

Sveinbjörn Ingi Grímsson, sérfræðingur í opinberri nýsköpun og stefnumótandi innkaupum hjá Fjársýslu ríkisins fjallaði um innkaup hins opinbera á nýsköpunarlausnum og hvernig megi gera ferlið skilvirkara fyrir nýsköpunarfyrirtæki.

Markus Lingman

Markus LingmanMarkus Lingman has a background as senior physician and has spent several years in healthcare management along with his professorship of medicine. He has been one of the drivers behind information driven care where data from all parts of healthcare and its knowledge domains informs provision and development. Today he is chief strategy officer of Region Halland and the national government representative in The scientific council for medicine and health. In 2020 he was named AI Swede of the year for his work on AI in healthcare. Markus Lingman is affiliated to Halmstad and Gothenburg University and Karolinska Institutet.

Barry Katz

Barry KatzBarry Katz is Emeritus Professor of Industrial and Interaction Design at the California College of the Arts and formerly Adjunct Professor of Mechanical Engineering at Stanford University and Lecturer at the Jacobs Institute for Design Innovation at U.C. Berkeley. As IDEO Fellow Barry worked for more than 20 years with the global design and innovation consultancy, and continues to consult with governments, companies, and academic institutions worldwide. His writings on design as a strategy of innovation have appeared in many academic, professional, and popular journals.

Barry and Lucie: "Designing with, not for: The Case for Participatory Design in Healthcare"

In this shared keynote, Barry Katz, design historian and professor at Stanford University and California College of the Arts, and Schirin Lucie Richter, Senior Partner at Future Medical Systems, present insights from their new book Healthcare by Design (University of Toronto Press, 2025).

Barry reflects on the history of design in healthcare and explores why so many promising innovations fail to stick. Schirin shares practical lessons from helping MedTech and digital health startups in the U.S. and Europe achieve product-market fit, showing how participatory design helps turn scientific innovation into market-ready, scalable solutions.

Drawing on real-world case studies, they make the case for engaging patients, providers, and other stakeholders early and meaningfully.

The takeaway: timely, inclusive co-design leads to resilient products, clinical relevance, and lasting adoption.

Schirin Lucie Richter

Schirin Lucie Richter

Schirin Lucie Richter is a healthcare innovation leader and Senior Partner at Future Medical Systems, a transatlantic consultancy specializing in guiding cross-functional teams across public health, inpatient and outpatient care, clinical trials, digital therapeutics, electronic health records, life sciences, and medical product development.

With over 20 years of experience in Europe and the Silicon Valley—including leadership roles at global design innovation firm IDEO, clinical trials startup goBalto (exit to Oracle), and Stanford Medicine’s Clinical Excellence Research Center—she brings a unique blend of systems thinking, design strategy, innovation leadership, and expertise in technology transfer.

Schirin has supported over 50 healthcare organizations worldwide—from startups and hospitals to insurers and Fortune 500 companies—helping them access new markets and transform breakthrough technologies into scalable, human-centered solutions.

She is the co-author of Discovery Design (Stanford, 2018) and Healthcare by Design (University of Toronto Press, 2025), a peer-reviewed, widely adopted framework for innovation in regulated healthcare environments. 

Sveinbjörn Ingi Grímsson

Sveinbjörn Ingi GrímssonSveinbjörn Ingi Grímsson er sérfræðingur Fjársýslunnar um opinbera nýsköpun sem leggur áherslu á nýsköpun í innkaupum, viðskiptaþróun og samvinnu við markaðinn. Hann hefur víða komið að stefnumótun og viðskiptaþróun og leiðir ýmis umbóta- og samstarfsverkefni fyrir hönd Fjársýslunnar. Sveinbjörn hefur verið talsmaður þess að ríkið verði ekki bara verðmætur stuðningsaðili nýsköpunar heldur einnig virkur og eftirsóknarverður viðskiptavinur.

Úr samstarfi í viðskipti var yfirskrift erindis Sveinbjörns á þinginu. Í erindinu fjallaði Sveinbjörn um að nú sé kominn tími til að stofnanir færi sig framar á Rodgers-kúrfunni. Hann dró einnig upp raunhæfa mynd af nálægri framtíð þar sem stofnanir bera þarfir fyrir framþróun á torg, fjármagna innkaup á nýsköpun með sjálfbærum hætti og byggja jákvæðan orðstýr meðal frumkvöðla og fjárfesta með viðskiptum.

Helga Þórisdóttir

Helga ÞórisdóttirHelga Þórisdóttir hefur verið forstjóri Persónuverndar frá 1. september 2015. Á skipunartíma sínum hefur hún lagt áherslu á það hvernig heilbrigðisupplýsingar eru unnar, sem og upplýsingar um börn, auk þess að stuðla að almennri vitundarvakningu hérlendis um persónuverndarmálefni. Áður en Helga tók við starfi forstjóra Persónuverndar starfaði hún hjá Lyfjastofnun sem yfirlögfræðingur og síðar settur forstjóri. Þá starfaði hún hjá menntamálaráðuneytinu, EFTA-skrifstofunni í Brussel, á nefndasviði Alþingis og hjá Ríkissaksóknara. Helga er með cand.jur.-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur einnig lokið AMP-námskeiði frá IESE Business School í Barcelona og diplómanámi í frönsku frá Université Paul Valery.

Borghildur Erlingsdóttir

Borghildur ErlingsdóttirBorghildur Erlingsdóttir hefur gegnt embætti forstjóra Hugverkastofunnar frá árinu 2010 og hefur áratuga reynslu á sviði hugverkaréttar, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi. Borghildur hefur verið varaformaður framkvæmdaráðs Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) frá árinu 2019 og stjórnarformaður Nordic Patent Institute frá árinu 2011. Hún leiddi vinnuhóp EFTA um hugverkarétt á árunum 2013 til 2019 og sat í framkvæmdaráði EPO 2015–2018. Borghildur situr í háskólaráði Háskólans í Reykjavík og hefur setið í fjölda nefnda og starfshópa um hugverkarétt og nýsköpun. Borghildur er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með LL.M.-gráðu í lögfræði, vísindum og tækni frá Stanford-háskóla. Þá hefur hún lokið framhaldsnámi í stjórnun (Advanced Management Program) við IESE Business School.

Pallborð

Pallborð um leikreglur - endurgjöf  var yfirskrift pallborðs þar sem þeir Alexander Jóhönnuson, formaður Samtaka sprotafyrirtækja og Sigurður Þórarinsson nýsköpunarstjóri á Landspítala ræddu um helstu tíðindi þingsins og hvernig þeir sjá fyrir sér að þær aðgerðir í þágu nýsköpunar og stafrænna lausna sem kynntar hafa verið muni gagnast. Auk þeirra tóku þátt í pallborðinu:

  • Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar
  • Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar
  • Ingi Steinar Ingason embætti landlæknis
  • Sigríður Valgeirsdóttir, menningar-, nýsköpunar-  og háskólaráðuneytinu.
  • Svava María Atladóttir, heilbrigðisráðuneyti,
  • Sveinbjörn I. Grímsson, Fjársýsla ríkisins

Ljósmyndir