Víti til varnaðar. Morgunverðarfundur um umferðaröryggi
Umferðaröryggisráð og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið buðu til morgunverðarfundar í Norræna húsinu fimmtudaginn 9. maí kl. 8.30. Markmið fundarins var að kynna nýtt slysakort, fara yfir tölfræði umferðarslysa árið 2018, helstu breytingar og með hvaða hætti tölfræðin nýtist til forvarna.
Dagskrá fundarins
- Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra setur fundinn.
- Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu:
Slysaskýrsla 2018 og nýtt slysakort - Auður Þóra Árnadóttir, forstöðumaður umferðardeildar hjá Vegagerðinni:
Nýting slysagagna við forgangsröðun umferðaröryggisaðgerða og helstu aðgerðir 2019 - Þorsteinn R. Hermannsson, samgöngustjóri Reykjavíkurborgar:
Umferðaröryggisáætlun Reykjavíkur; öryggi óháð ferðamáta - Pallborðsumræður með fyrirlesurum og Oddi Árnasyni, yfirlögregluþjóni á Suðurland
Fundarstjóri: Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.
Innviðaráðuneytið