Mannauðsmál
Það er stefna innviðaráðuneytisins að hafa ávallt á að skipa hæfu og áhugasömu starfsfólki sem sýnir frumkvæði í störfum, veitir góða þjónustu og bregst við síbreytilegum þörfum samfélagsins. Í mannauðsstefnu ráðuneytisins er lögð rík áhersla á starfsánægju og heilbrigði starfsfólks, jafnvægi milli vinnu og einkalífs, jafnrétti, góðan aðbúnað á vinnustað, jákvæð samskipti, faglega og styðjandi stjórnun og tækifæri fyrir starfsfólk til símenntunar og þróunar í starfi.
Starfsmannahópur ráðuneytisins hefur fjölbreyttan bakgrunn hvað varðar menntun og reynslu. Í desember 2024 voru 40 einstaklingar í starfi hjá ráðuneytinu, 24 konur og 16 karlar. Ráðuneytið tekur þátt í reglulegum vinnustaðakönnunum sem framkvæmdar eru í öllu Stjórnarráðinu.
Jafnlaunavottun
Um ráðuneytið