Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið veitir styrki til verkefna og viðburða á málefnasviði ráðherra. Ekki eru veittir styrkir til ríkisstofnana eða sveitarfélaga. Styrkjum er úthlutað samkvæmt úthlutunarreglum - sjá hér fyrir neðan.
Opið er fyrir umsóknir
Ávallt er hægt að sækja um styrki úr Örvari en úthlutað er að jafnaði þrisvar sinnum á ári:
- Fyrsta úthlutun í apríl: umsóknir sem berast 1. desember – 31. mars.
- Önnur úthlutun í ágúst:
umsóknir sem berast 1. apríl – 31. júlí.
- Þriðja úthlutun í desember:
umsóknir sem berast 1. ágúst – 30. nóvember.
Umsóknir skulu berast rafrænt á umsóknareyðublaði sem nálgast má á minarsidur.mnh.is.
Ráðherra tekur lokaákvörðun um styrkveitingar. Svarbréf eru send til umsækjenda í kjölfarið.
Ráðherra getur ákveðið að leggja áherslu á ákveðin mál á verkefnasviði ráðuneytisins þegar kemur að úthlutun styrkja. Slíkar áherslur eru auglýstar sérstaklega.
Styrkir úr Örvari eru ætlaðir þeim verkefnum sem ekki teljast styrkhæf annars staðar og eru ekki styrkt með öðrum hætti. Að jafnaði eru styrkir eingöngu veittir til verkefna sem ekki njóta lögbundins stuðnings eða falla undir sjóði eða sérstaka samninga. Ekki eru veittir rekstrarstyrkir, styrkir til nefndarsetu eða styrkir til B.A./B.S. eða meistaraprófa.
Samkvæmt úthlutunarreglum mun matshópur skipaður af ráðherra meta umsóknir en horft verður til ýmissa þátta við úthlutunina, m.a. hvort verkefnin þyki hafa gildi fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks, hvort verkefnið búi yfir sérstöðu eða nýnæmi og hvort markmið og mælikvarðar séu skýrir. Frekari upplýsingar um styrkhæfi, mat á umsóknum og viðmið má finna í úthlutunarreglum.
Hámarksupphæð styrks sem verkefni getur hlotið er 1.500.000 kr.