Mennta- og barnamálaráðherra

Inga Sæland

Mennta- og barnamálaráðherra

Inga tók við embætti mennta- og barnamálaráðherra 11. janúar 2026. Hún var félags- og húsnæðismálaráðherra frá 21. desember 2024 til 11. janúar 2026.

Hún hefur verið alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður síðan 2017 (Flokkur fólksins).

Inga stofnaði Flokk fólksins 2016 og hefur verið formaður frá stofnun. Hún hefur setið í samráðsnefnd um veiðigjöld síðan 2018, atvinnuveganefnd 2017–2018 og 2022–, fjárlaganefnd 2018–2021, þingskapanefnd 2019–2021, undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa 2021, kjörbréfanefnd 2021.

Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2017–2020, Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2020–2021.