Borgartún 33 105 Reykjavík
Sími: 5459500
Kennitala: 460269-2969
Netfang: mrn[at]mrn.is
Afgreiðsla virka daga frá kl. 08:30 - 16:00
Meginhlutverk mennta- og barnamálaráðuneytisins er að tryggja að menntun, aðbúnaður og réttindi barna á Íslandi séu ávallt í fyrirrúmi.
Meðal málefna sem ráðuneytið fer með eru fræðslumál barna og ungmenna, þar með talin málefni leik-, grunn og framhaldsskóla, listaskóla og lýðskóla, og málefni sem snerta þjónustu við börn og ungmenni, s.s. barnavernd og samþætting þjónustu í þeirra þágu. Mennta- og barnamálaráðuneytið fer einnig með íþrótta- og æskulýðsmál. Menntun á framhaldsskólastigi, hvort heldur bók-, verk- eða listnám, heyrir undir ráðuneytið.
Ráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Allar embættisfærslur starfsmanna eru gerðar í umboði ráðherra.
Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.
Undirstofnanir ráðuneytisins eru Barna- og fjölskyldustofa, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Ráðgjafar- og greiningarstöð og framhaldsskólar landsins.
Verkefni ráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Borgartún 33 105 Reykjavík
Sími: 5459500
Kennitala: 460269-2969
Netfang: mrn[at]mrn.is
Afgreiðsla virka daga frá kl. 08:30 - 16:00
Um ráðuneytið