Ísland hjá ESB í Brussel (EES & Schengen)

Sendiráðið er sendiskrifstofa Íslands gagnvart Evrópusambandinu (ESB). Meginhluti starfseminnar snýr að rekstri EES-samningsins, þátttöku Íslands í Schengen og öðru Evrópusamstarfi. Auk Belgíu eru umdæmislönd sendráðsins Holland og Lúxemborg. Sendiráðið sinnir hefðbundnu hlutverki sendiskrifstofa gagnvart umdæmisríkjunum og veitir aðstoð við Íslendinga og gætir hagsmuna Íslands.