Ísland í Japan

Hlutverk sendiráð Íslands í Tókýó er að veita þjónustu við Íslendinga í umdæmisríkjum þess og gæta hagsmuna Íslands, einkum á sviði utanríkis-, viðskipta- og menningamála.

Auk Japans eru önnur ríki í umdæmi sendiráðsins Filippseyjar, Indónesía, Singapúr, Suður-Kórea og Taíland. Þá gegnir sendiráðið hlutverki sendiskrifstofu gagnvart Sambandi Suðaustur-Asíuríkja (ASEAN). Sendiráðið var opnað árið 2001.

Nánar