Þjónusta við Íslendinga

Sendiráð Íslands í Tókýó leggur lið þeim Íslendingum sem búsettir eru í umdæmislöndunum, námsmönnum og ferðamönnum. Algengast er að fólk leiti til sendiráðsins vegna umsókna um vegabréf, útgáfu neyðarvegabréfa og leiðbeininga vegna útgáfu ýmissa vottorða frá Þjóðskrá. Nánari upplýsingar um aðstoð við Íslendinga erlendis má finna á vef borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins.

Sendiráð sinnir viðskiptaþjónustu og menningarkynningu í samstarfi með Íslandsstofu og öðrum hlutaðeigandi. Íslenska viðskiptaráðið í Japan er með aðsetur í Tókýó og Japansk-íslenska viðskiptaráðið í Reykjavík, einnig er starfrækt Félag Íslendinga í Japan.

Að jafnaði dvelja um það bil 80 Íslendingar í Japan og hefur þeim fjölgað á síðustu árum. Koma þar einkum til tíð nemendaskipti á milli íslenskra og japanskra háskóla.

Áritanir

Íslendingar þurfa ekki að sækja um vegabréfsáritun ef þeir dvelja í Japan sem ferðamenn skemur en 90 daga.

Almennar upplýsingar um vegabréfsáritanir til annarra landa er að finna á vef utanríkisráðuneytisins.

Umsókn um vegabréf

Búseta í Japan

Þeir Íslendingar sem hyggjast vinna í Japan verða að sækja um atvinnuleyfi og áritun áður en þeir koma til landsins. Nánari upplýsingar eru veittar hjá sendiráði Japans á Íslandi.

Vinnudvöl ungs fólks

Þann 1. september 2018 tók gildi samningur íslenskra og japanskra stjórnvalda um vinnudvöl ungs fólks (Working Holiday). Samningurinn gerir ríkisborgurum landanna tveggja á aldrinum 18 til 26 ára kleift að dvelja í landi hvors annars í þeim tilgangi að kynnast landinu og menningu þess. Japan er fyrsta landið sem íslensk stjórnvöld gera slíkan samning við.

Japanskir ríkisborgarar sem hafa áhuga á að sækja um dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli samningsins þurfa að uppfylla öll grunnskilyrði dvalarleyfis hér á landi auk aldursskilyrðisins. Tilgangur dvalar skal vera að kynna sér Ísland og menningu landsins og er leyfið veitt í að hámarki 12 mánuði. Handhafar leyfisins fá óbundið atvinnuleyfi og geta því unnið hér á landi og skipt um vinnu án þess að sækja um það til Vinnumálastofnunar meðan á dvölinni stendur.

Nánari upplýsingar fyrir japönsk ungmenni sem vilja dvelja tímabundið á Íslandi er að finna hér.

Upplýsingar fyrir íslensk ungmenni sem vilja dvelja tímabundið í Japan er að finna hér.

Ferðast til Japans

Íslendingum er heimilt að dveljast sem ferðamenn í Japan í allt að 90 daga án þess að sækja um ferðamannaáritun.

Eftirfarandi eru nokkrar vefsíður með upplýsingum um ferðalög til Japans:

Japan National Tourism OrganizationJapan Rail PassJapanGov

Nám í Japan

Upplýsingar um nám í Japan

Study in JapanJapanska menntamálaráðuneytið

Nánari upplýsingar veitir sendiráð Japans á Íslandi

Upplýsingar um japanska samstarfskóla íslenskra háskóla

Háskóli ÍslandsHáskólinn í ReykjavíkHáskólinn á Bifröst

Watanabe styrktarsjóðurinn

Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til námsdvalar í Japan og á Íslandi, bæði nemendum í grunnnámi og framhaldsnámi, auk þess að stuðla að kennaraskiptum.

Upplýsingar um Watanabe styrktarsjóðinn er að finna á vef Háskóla Íslands.

Fjarpróf

Nemendum við íslenskar menntastofnanir, sem staddir eru erlendis, stendur til boða að taka fjarpróf hjá tilteknum sendiskrifstofum Íslands og eftir atvikum kjörræðismönnum. Miðað er við að próftakan sé á virkum dögum á opnunartíma sendiskrifstofu. Þeir próftímar sem standa til boða fara eftir getu sendiskrifstofunnar hverju sinni.

Ferlið

  • Ef bókunarvél er ekki til staðar á vef sendiskrifstofunnar þá skal nemandi senda próftökubeiðni í tölvupósti með góðum fyrirvara á almenna netfang sendiskrifstofu.
  • Í próftökubeiðninni skal taka fram fullt nafn nemanda, kennitölu, heiti menntastofnunar og námsbrautar, dagsetningu og tímasetningu prófs.
  • Nemandi sendir næst inn umsókn um fjarpróf til skólans eftir að hafa fengið svar frá sendiskrifstofunni.
  • Skólinn upplýsir sendiskrifstofuna um að heimild sé veitt fyrir próftöku.
  • Nemandi staðfestir viku fyrir próf að hann/hún/hán ætli að þreyta prófið.
  • Skólinn sendir sendiskrifstofunni prófið a.m.k. einum virkum degi fyrir prófdag.

Nemandi greiðir póstburðargjald/umsýslugjald til sendiskrifstofunnar fyrir hvert próf sem senda þarf til Íslands með pósti. Einnig þarf nemandi að greiða fyrir ljósritun/útprentun prófgagna ef svo ber undir.

Annað

  • Tilkynna ber forföll eins fljótt og auðið er til sendiskrifstofunnar.
  • Framvísa verður persónuskilríkjum áður en próf hefst.
  • Nemendur mega ekki yfirgefa prófstað fyrr en prófið á Íslandi er hafið (nema að um annað hafi verið samið við viðkomandi menntastofnun).
  • Sendiskrifstofur eru ekki hannaðar fyrir próftökur. Því er ekki tryggt að þar sé hljótt vegna almennrar starfsemi í húsinu. Mælt er með því að nemendur taki með sér eyrnatappa.
  • Sendiskrifstofum er heimilt að hafna beiðnum um próftökur sökum anna tengdum reglubundinni starfsemi eða plássleysis. Í slíkum tilfellum er það alfarið á ábyrgð próftaka að finna annan stað til að þreyta prófið.