15 mars 2022

/

Kristín Ragna Gunnarsdóttir tók þátt í bókmenntahátíðinni í Jaipur

{image.Description}
Kristín Ragna á sviði bókmenntahátíðarinnar í Jaipur ásamt fundarstjóranum Shivani Sibal

Norræna goðafræði bar hátt á bókmenntahátíðinni í Jaipur 13. mars 2022 þegar Kristín Ragna Gunnarsdóttir rithöfundur og myndlistarkona las úr verkum sínum og ræddi efniviðinn sem hún sækir í sagnaarfinn. Áheyrendur sýndu mikinn áhuga á goðafræðinni enda eiga Indverjar sjálfir forna goðafræðin og lifandi sagnaarf. Bókmenntahátíðin í Jaipur er ein virtasta sinnar tegundar á Indlandi. Sendiráðið í Nýju-Delhí skipulagði íslensku þátttökuna í samvinnu við Miðstöð íslenskra bókmennta og utanríkisráðuneytið.