22 júní 2023

/

Viðburður í tilefni birtingar skýrslu OECD um greiningu á launamuni karla og kvenna í aðildarríkjum OECD

{image.Description}
Unnur Orradóttir Ramette, sendiherra í París og fastafulltrúi Íslands gagnvart OECD

Unnur Orradóttir Ramette, sendiherra og fastafulltrúi Íslands gagnvart OECD, og Kristín Þóra Harðardóttir, lögfræðingur skrifstofu jafnréttismála hjá Forsætisráðuneytinu, tóku þátt þann 13. júní sl. í viðburði í tilefni birtingar skýrslu OECD um greiningu stofnunarinnar á launamuni karla og kvenna í aðildarríkjum OECD. Fjölluðu þær um helstu niðurstöður og áhrif jafnlaunavottunar á launamun á Íslandi.

Upptöku frá viðburðinum má finna hér.