17 ágúst 2023

/

Íslenskir alþingismenn heimsækja Indland.

Þrír alþingismenn heimsóttu Indland 17. – 26. ágúst, þau Ágúst Bjarni Garðarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Jóhann Páll Jóhannsson í boði Indversku stofnunarinnar fyrir menningarsamskipti við útlönd (Indian Council for Cultural Relations, ICCR). Alþingismennirnir ferðuðust til Agra og Kashmir auk Nýju-Delhí.