05 apríl 2024

/

Opnun myndlistarsýningar Reinars Foreman í París

{image.Description}
Við opnun myndlistarsýningar íslenska listamannsins Reinars Foreman í París

Sýning íslenska myndlistarmannsins Reinars Foreman var opnuð í Galerie de Buci í gær í samstarfi við sendiráð Íslands í París.

Sýningin sem ber heitið „Living Gods“ er fyrsta einkasýning listamannsins í Frakklandi en hann hefur áður haldið sýningar í Þýskalandi, Rússlandi og á Íslandi.

Í málverkum sínum vinnur Reinar með túlkun á styttum af persónum klassískrar goðafræði þar sem guðirnir lifna við á á litríkum striga.

Sýningin stendur til 16. maí nk. í Galerie de Buci, 73 rue de Seine í 6. hverfi Parísar.