13 desember 2024

/

Ísland í heiðurssæti á kvikmyndahátíðinni Les Arcs

{image.Description}
Pete Webb
Kvikmyndahátíðin Les Arcs fer fram í frönsku Ölpunum

Ísland verður í heiðurssæti hinnar virtu evrópsku kvikmyndahátíðar Les Arcs sem hefst á morgun og stendur yfir til 21. desember.  Unnur Orradóttir Ramette, sendiherra, verður viðstödd opnunina en hátíðin fer að vanda fram í frönsku Ölpunum.  Fjöldi íslenskra kvikmynda hafa í gegnum tíðina tekið þátt og hlotið verðlaun á Les Arcs en þetta er í fyrsta sinn sem íslenskar kvikmyndir og tónlist eru í öndvegi.  Tuttugu íslensk kvikmyndaverk verða sýnd á hátíðinni, þar á meðal kvikmyndirnar Ljósbrot í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar og Snerting í leikstjórn Baltasars Kormáks sem sýndar verða á aðaldagskrá hátíðarinnar.  Íslensk tónlist verður einnig í aðalhlutverki á hátíðinni, en sérstakt tónlistarþorp mun varpa ljósi á framlag Íslands til kvikmyndatónlistar.  Þá munu Högni Egilsson og Lúpína koma fram á tónleikum. 

Þátttaka Íslands á hátíðinni er skipulögð í samstarfi við Kvikmyndamiðstöð Íslands og Tónlistarmiðstöð, með stuðningi sendiráðs Íslands í París.