08 maí 2025
/
177. fundarlota Matvæla- og landbúnaðarstofnunar SÞ í Róm
177. fundarlota Matvæla- og landbúnaðarstofnunar SÞ í Róm var haldin 7.-11. apríl 2025. Fyrir hönd Íslands fluttu þau Guðmundur Árnason sendiherra og Sólrún Svandal sérfræðingur utanríkisráðuneytisins ávörp til að vekja athygli á áherslumálum Íslands í þróunarsamvinnu. Á fyrsta degi var vakin athygli á málefnum hafsins innan stofnunarinnar undir dagskrárliðnum um langtímastefnu FAO (Review of the Strategic Framework). Á öðrum degi var flutt ávarp um mikilvægi jafnréttis undir dagskrárliðnum #4 Medium-Term Plan & Programme of Work and Budget. Ávörpin, ásamt yfirlýsingum sem flutt voru í nafni Norðurlandanna og Ísland á þar með aðild að, verða birt á vefsíðu fastanefndarinnar. Er rétt að nefna að afar jákvæð viðbrögð bárust við báðum yfirlýsingum frá viðkomandi skipulagseiningum innan stofnunarinnar eftir fundinn.
Ávörp Íslands í fundarlotunni:
- Iceland: Statement 177th Session of the FAO Council 7-11 April 2025 Item #3 Reviewed Strategic Framework 2022-31
- Iceland: Statement 177th Session of the FAO Council 7-11 April 2025 Item #4 Medium Term Plan 2026-29 and Programme of Work and Budget 2026-27