06 júní 2025

/

Málþing um jarðvegsmál hjá Matvæla- og landbúnaðarstofnun S.Þ. í Róm

{image.Description}

Dagana 3-5 júní var haldin „Global Soil Partnership (GSP) Plenary Assembly“ hjá Matvæla- og landbúnaðarstofnun S.Þ. (FAO) í Róm.

Þórunn Wolfram Pétursdóttir PhD sem starfar hjá stofnuninni og stýrir skrifstofu GSP, var meðal stjórnenda á málþinginu.

Til umfjöllunar var m.a. sá árangur sem náðst hefur í jarðvegsmálum hjá FAO og framtíðarstefnumótun í stjórnun jarðvegsmála með áherslu á sjálfbæra nýtingu jarðvegs í landbúnaðarkerfum heimsins.

Einnig voru rædd  málefni er varða mögulegan S.Þ. áratug jarðvegsheilsu (e. Soil Health) sem tengist áherslum GRÓ – LRT (Land Restoration Training Programme) þar sem jarðvegsheilsa og sjálfbær nýting jarðvegsauðlindarinnar eru undirstöðuviðfangsefni GRÓ-LRT.