13 júní 2025

/

Ísland og Frakkland efla tvíhliða samstarf á sviði varnarmála

{image.Description}
Jónas G. Allansson skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og Alexandre Escorcia, skrifstofustjóri málefna Evrópu, Norður-Ameríku og fjölþjóðasamstarfs hjá varnarmálaráðuneyti Frakklands, að lokinni undirskrift.

Íslensk og frönsk stjórnvöld ætla að efla enn frekar tvíhliða varnarsamstarf ríkjanna, en viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn í vikunni. 

Þá fór fram tvíhliða samráð ríkjanna um samstarf á sviði öryggis- og varnarmála, þar sem öryggisáskoranir á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum og aukið tvíhliða varnarsamstarf ríkjanna var til umræðu. Þá voru málefni Atlantshafsbandalagsins og komandi leiðtogafundur bandalagsins í Haag síðar í mánuðinum sömuleiðis til umræðu sem og stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu gegn ólöglegu landvinningastríði Rússlands.

Fulltrúum franskra stjórnvalda var auk þess boðið í kynningarferð um öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli þar sem aðgerðir Íslands til stuðnings sameiginlegum vörnum Atlantshafsbandalagsins voru kynntar, m.a. kafbátaeftirlit og loftrýmisgæsla. Þá var farið yfir aukna áherslu íslenskra stjórnvalda á öryggis- og varnarmál sem og yfirstandandi vinna við mótun fyrstu öryggis- og varnarmálastefnu Íslands. 

Skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og skrifstofustjóri málefna Evrópu, Norður-Ameríku og fjölþjóðasamstarfs hjá varnarmálaráðuneyti Frakklands, undirrituðu viljayfirlýsinguna um aukið tvíhliða varnarsamstarf fyrir hönd ríkjanna.