05 september 2025

/

Nýr fastafulltrúi Íslands gagnvart OECD

{image.Description}
© OECD 2025
Mathias Cormann, framkvæmdastjóri OECD og María Mjöll Jónsdóttir, sendiherra og fastafulltrúi Íslands gagnvart stofnuninni
María Mjöll Jónsdóttir afhenti í gær Mathias Cormann, framkvæmdastjóra Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), fulltrúabréf sem sendiherra og fastafulltrúi Íslands gagnvart stofnuninni. Til umræðu voru áherslumál Íslands hjá stofnuninni og mikilvægi frjálsra alþjóðaviðskipta, lýðræðis og jafnréttis. Þá var rætt um samstarf um þróunarsamvinnu á vettvangi stofnunarinnar, sérstaklega í aðdraganda fundar þróunarnefndar OECD, DAC, svokallaðs Tidewater-fundar sem haldinn verður á Íslandi í næstu viku.

Starfsemi OECD felst m.a. í því að koma á gagnreyndum alþjóðlegum stöðlum og vinna að stefnumörkun sem leiðir til velmegunar, jafnréttis, aukinna tækifæra og bættra lífsgæða, en kjörorð stofnunarinnar er „Betri stefnur fyrir betra líf“ (e. „Better policies for better lives“).

Ísland, sem er meðal 38 aðildarríkja OECD, tekur virkan þátt í starfi hennar í gegnum fastanefnd sína í París og ráðuneyti og stofnanir á Íslandi. Hátt í 200 sérfræðingar íslenskrar stjórnsýslu taka virkan þátt í starfi stofnunarinnar á hverju ári og ráðherrar frá aðildarríkjum bera reglulega saman bækur sínar.