23 september 2025

/

Ísland styður við málefni hinsegin fólks

{image.Description}
Þorgerður Katrín og Maria Sjödin undirrita samninginn í gær.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra undirritaði í gær samning um áframhaldandi stuðning Íslands við samtökin Outright International en þau sinna mikilvægum stuðningi við grasrótarsamtök hinsegin fólks, auk málsvarastarfs á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.

Um er að ræða 150 milljón króna framlag til átján mánaða og undirritaði Þorgerður Katrín samkomulagið í höfuðstöðvum Outright International í New York en hún sækir í þessari viku allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Maria Sjödin, framkvæmdastjóri Outright International, skrifaði undir samkomulagið fyrir hönd samtakanna.

Utanríkisráðherra flutti svo í dag ávarp á sérstökum fundi ríkjahóps um hinsegin réttindi hjá Sameinuðu þjóðunum, LGBTI Core Group, og var Ísland meðal formlegra gestgjafa fundarins. Holland og Chile gegna formennsku í hópnum og Outright International sinna þjónustu við hópinn. Yfirskrift fundarins var We the Peoples at UNGA 80: LGBTI Youth and the Future og var áherslan á áskoranir hinsegin ungmenna og aðgerðir til að tryggja mannréttindi þeirra.

„Á þessum tímum, þegar við höfum horft upp á bakslag í réttindum hinsegin fólks um heim allan, skiptir öllu máli að við leggjum okkar af mörkum. Til að spyrna við fótum og standa með réttindum fólks til að vera eins og það er og til að fá að lifa við frið og frelsi,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Í stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024-2028 er lögð rík áhersla á stuðning við réttindabaráttu hinsegin fólks, málefni sem þarfnast nú vaxandi athygli og stuðnings sökum hnattræns bakslags og niðurskurðar til þróunarsamvinnu.