30 október 2025

/

Ný samvinnutækifæri í Portúgal

{image.Description}
João Bica
Sendiherrar Íslands og Noregs í Portúgal og sendiherra Portúgals gagnvart Noregi og Íslandi ásamt Mariu Mineiro yfirmanni Uppbyggingarsjóðs EES í Portúgal.
Ný samvinnutækifæri í Portúgal með stuðningi Uppbyggingarsjóðs EES voru til umræðu í Lissabon á þriðjudag. Fulltrúar frá Íslandi, Noregi, Liechtenstein og Portúgal komu saman til að stuðla að aukinni samvinnu milli ríkjanna á sviði grænna og blárra lausna, menningar og mannréttinda. Þátttaka íslenskra samstarfsaðila í verkefnum í Portúgal hefur aukist á undanförnum árum og stendur til að bæta enn í á nýju samstarfstímabili sjóðsins. Andrés Pétursson og Ragnhildur Zoega voru fulltrúar Rannís sem lykilþátttakandi á tveimur af fjórum samstarfssviðum og veitir upplýsingar um sjóðinn.

María Mjöll Jónsdóttir, sendiherra Íslands gagnvart Portúgal með aðsetur í París, tók þátt í pallborðsumræðum á ráðstefnunni og nýtti tækifærið til að afhenda ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins afrit trúnaðarbréfs, sem gerir henni kleift að vinna að tvíhliða samskiptum Íslands og Portúgal. Hún hitti einnig yfirmenn Evrópumála og alþjóðapólitískra málefna.

María naut dyggrar aðstoðar ræðismanns Íslands í Lissabon, Helenu Dundas, sem hefur aðstoðað Íslendinga í fjölda ára líkt og faðir hennar gerði áður.