28 nóvember 2025
/
Heimildarmyndin "Dagurinn sem Ísland stöðvaðist" sýnd á jafnréttisviðburði í París
Heimildarmynd Hrafnhildar Gunnarsdóttur og Pamelu Hogan um Kvennafrídaginn 1975 var sýnd við góðar undirtektir fyrir fullum sal gesta í gær, 27. nóvember. Sendiráð Íslands í París stóð fyrir viðburðinum sem fram fór í kvikmyndahúsinu L'Entrepôt í París.
Í kjölfarið fóru fram umræður um stöðu jafnréttismála á alþjóðavettvangi með þátttöku jafnréttisstýru UNESCO, Begoña Lasagabaster, yfirmanni jafnréttismiðaðrar utanríkisstefnu Frakklands, Janaïna Herrera, Hrafnhildar og Maríu Mjallar Jónsdóttur, sendiherra, sem stýrði umræðunum. Ræddu þátttakendur m.a. um það bakslag sem orðið hefur í jafnréttisbaráttunni á alþjóðavísu og mikilvægi þess að bregðast markvisst við áskorunum sem steðja að kynjajafnrétti.