16 desember 2025
/
Nýr fastafulltrúi Íslands gagnvart UNESCO
María Mjöll Jónsdóttir afhenti þann 12. desember síðastliðinn Khaled El-Enany, framkvæmdastjóra Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), trúnaðarbréf sem sendiherra og fastafulltrúi Íslands gagnvart stofnuninni.
Til umræðu voru áherslumál Íslands hjá stofnuninni, jafnréttis- og mannréttindamál en Ísland leiðir þar vinahóp jafnréttismála. Þá var rætt um umbótaferli tengt 80 afmæli Sameinuðu þjóðanna, þróunarsamvinnumál og GRÓ og Vigdísarstofnun sem báðar starfa undir merkjum UNESCO.
UNESCO er sjálfstæð undirstofnun Sameinuðu þjóðanna sem stofnuð var í kjölfar heimstyrjaldarinnar síðari. Ísland gerðist aðili árið 1964 og eiga nú 194 ríki aðild að stofnuninni. Hún hefur að markmiði að stuðla að friði og öryggi í heiminum með því að efla alþjóðlega samvinnu á sviði mennta- og menningarmála, vísinda og fjölmiðlafrelsis. Ísland lauk nýverið fjögurra ára setu í framkvæmdastjórn UNESCO fyrir hönd Norðurlandanna og lagði þar m.a. áherslu á jafnréttismál, mannréttindi, tjáningarfrelsi fjölmiðla-, vísinda- og listamanna, menntun fyrir öll, málefni hafsins og viðbrögð UNESCO í Afganistan, Gaza og Úkraínu.