16 janúar 2026
/
Saltfiskur og jafnrétti í Portúgal
Í áranna rás hafa samskipti ríkjanna byggst á viðskiptum með saltfisk sem er þjóðarréttur Portúgala og mikilvægasta útflutningsvara Íslands á þessum markaði. Sameiginlegir hagsmunir ríkjanna eru verulegir enda ríkin bæði aðilar að innri markaði EES og Atlantshafsbandalaginu og hafa Portúgalar m.a. sinnt loftrýmisgæslu á Íslandi. Bæði ríkin leggja einnig mikla áherslu á alþjóðalög og alþjóðakerfið sem byggst hefur upp frá síðari heimsstyrjöld.
Uppbyggingarsjóður EES veitir styrki til verkefna í Portúgal sem Ísland tekur þátt í, m.a. á sviði bláa hagkerfisins og aðgerðum gegn kynbundnu ofbeldi. Líkt og hvarvetna annars staðar eru hin Norðurlöndin lykilsamstarfsaðilar á vettvangi og gafst norrænu sendiherrunum tækifæri til að bera saman bækur sínar.