24 mars 2026

/

Kynning á íslenskum uppbyggingarverkefnum á MIPIM í Frakklandi

{image.Description}
María Mjöll Jónsdóttir opnaði málþing um fasteignafjárfestingar á Íslandi á MIPIM
Íslensk uppbyggingarverkefni á Keldum og í Keflavík voru kynnt á MIPIM, stærstu árlegu fasteignaraðstefnu í heimi sem haldin var dagana 9.-13. mars í Cannes í Frakklandi. Íslandsstofa sá um skipulagið en ráðstefnuna sóttu fulltrúar Kadeko, Betri samgangna og Keldna, á samt Heiðu Björg Hilmisdóttur borgarstjóra, Karli Guðmundssyni verkefnastjóra stórfjarfestinga í forsætisráðuneytinu, og fleirum. María Mjöll Jónsdóttir, sendiherra, sótti ráðstefnuna og opnaði málþing um fasteignafjárfestingar á Íslandi.