14 apríl 2026

/

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga hefst 17. apríl

{image.Description}

Kosning utan kjörfundar erlendis vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026 hefst 17. apríl nk.

Kjörstaðir erlendis eru:

• Sendiskrifstofur Íslands (nema fastanefnd Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu í Brussel)
• Aðalræðisskrifstofur í Winnipeg, Þórshöfn og Nuuk
• Hjá kjörræðismönnum

Sjá upplýsingar um sendiskrifstofur Íslands og kjörræðismenn eftir löndum.  Athugið að hafa þarf beint samband við viðkomandi kjörræðismann til að kjósa þar.

Í sendiráðinu í París verður hægt að kjósa alla virka daga frá 09:30-15:30, en við vekjum athygli á því að sendiráðið er lokað 1. og 14. maí.

Í sveitarstjórnarkosningum byggir kosningaréttur á lögheimili og gildir í því sveitarfélagi sem viðkomandi er skráður með lögheimili í.

Kjósendur geta flett upp hvort og hvar þeir séu á kjörskrá á vef Þjóðskrár.

Sýna þarf skilríki (vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini) á kjörstað.

• Kjósendur bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila.
• Athugið að senda þarf atkvæði beint á það sveitarfélag sem kjósandi er skráður með lögheimili í.
• Ef senda á atkvæði með pósti er ráð að kjósa tímanlega og þá þarf sömuleiðis að taka mið af sendingartíma og áreiðanleika viðkomandi póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.

Á Ísland.is eru aðgengilegar upplýsingar um hvaðeina sem viðkemur framkvæmd kosninga, bæði á íslensku og ensku.