29 apríl 2026

/

Sveitarstjórnarkosningar 2026 - atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í sendiráðinu í London og hjá kjörræðismönnum

{image.Description}

Sendiráð Íslands í London vekur athygli á utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi sveitarstjórnarkosninga sem fara fram á Íslandi 16. maí n.k. 

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst hjá sendiráðinu og kjörræðismönnum Íslands föstudaginn 17. apríl.

Í sendiráðinu í London er hægt að greiða atkvæði alla virka daga á milli kl. 9:30-16:00, fram til 15. maí.

Kjósendur þurfa að framvísa gildum íslenskum persónuskilríkjum, svo sem vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini.

Athugið að lokað verður í sendiráðinu eftirfarandi daga: 1. maí, 4. maí og 14. maí.

Athugið að þeir kjósendur sem hyggjast kjósa hjá kjörræðismönnum Íslands þurfa að panta tíma fyrirfram hjá viðkomandi ræðismanni. Lista yfir ræðismenn má finna á vef utanríkisráðuneytisins.

Í sveitarstjórnarkosningum byggir kosningaréttur á lögheimili og þurfa kjósendur að hafa lögheimili á Íslandi. Kjósendur geta flett upp hvort og hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár.

Nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu má nálgast á kosning.is 

Kjósandi ber ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Kjörstjóra er þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í almennan póst. Ef senda á atkvæði með pósti er mælt með að kjósa tímanlega og taka mið af sendingartíma og áreiðanleika viðkomandi póstþjónustu.