Vöktun
Í og við húsnæði ráðuneyta má finna eftirlitsmyndavélar. Þær má aðallega finna við lyftur, inn- og útgang, í afgreiðslu og í sumum tilfellum utan húss. Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins fer með umsjón og rekstur eftirlitsmyndavélanna fyrir eftirfarandi ráðuneyti:
- Atvinnuvegaráðuneytið
- Dómsmálaráðuneytið
- Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
- Fjármála- og efnahagsráðuneytið
- Heilbrigðisráðuneytið
- Innviðaráðuneytið
- Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
- Mennta- og barnamálaráðuneytið
- Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ríkislögreglustjóri ([email protected]) fer með umsjón og rekstur myndavéla fyrir forsætisráðuneytið. Utanríkisráðuneytið ([email protected]) fer sjálft með umsjón og rekstur myndavéla ráðuneytisins.
Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins er ráðuneytisstofnun undir fjármála- og efnahagsráðuneytinu og sinnir ýmsum sameiginlegum rekstrarþáttum ráðuneytanna. Umbra telst ábyrgðaraðili samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (persónuverndarlög) að vinnslu persónuupplýsinga sem safnast við öryggisvöktun með eftirlitsmyndavélum.
Umbra er til húsa við Skuggasund 3, 101 Reykjavík. Hægt er að hafa samband við Umbru í síma 545 8800 og á netfangið [email protected].
Persónuverndarfulltrúi Stjórnarráðsins er Daði Heiðar Kristinsson. Hann er staðsettur í dómsmálaráðuneytinu, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík. Hægt er að hafa samband við hann í síma 545 9000 og á netfangið [email protected].
Hvaða persónuupplýsingar er unnið með og hvers vegna?
Öllu myndefni er safnað þar sem hreyfing á sér stað er safnað með eftirlitsmyndavélum, þar á meðal ferðum fólks í og við húsnæði ráðuneytanna. Myndefnið er hljóðlaust. Hljóðupptaka er ýmist ekki möguleg á myndavélunum eða hefur verið gerð óvirk. Sjónsvið myndavéla hefur verið skyggt þar sem það nær út fyrir lóðamörk húsnæðis ráðuneytanna. Sumar myndavélar taka upp allt myndefni en aðrar fara eingöngu í gang ef þær nema hreyfingu.
Hvers vegna er Stjórnarráðinu heimilt að vinna með persónuupplýsingarnar?
Rafræn vöktun með eftirlitsmyndavélum á sér stað í öryggis- og eignavörsluskyni, til að gæta lögmætra hagsmuna ráðuneytanna, sbr. 6. tölul. 9. gr. persónuverndarlaga.
Hverjir vinna með persónuupplýsingarnar?
Kerfisstjóri og öryggis- og aðgangsstjóri getur skoðað myndefnið í rauntíma, aftur í tíma og tekið afrit að beiðni ráðuneytis eða lögreglu, en gögn (afrit) eru eingöngu afhent lögreglu.
Securitas sinnir staðbundinni öryggisgæslu í húsnæði ráðuneyta. Securitas hefur starfsstöð í einu ráðuneytanna og hefur þar búnað þar sem öryggisverðir geta fylgst með myndefni í beinni og afmarkað aftur í tíma. Securitas starfar fyrir ráðuneytin á grundvelli þjónustusamnings við Umbru eftir útboð samkvæmt lögum um opinber innkaup nr. 120/2016.
Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar hefur aðgang að myndefni úr ákveðnum myndavélum, beint, aftur í tíma og upptökum. Ástæðan er varnir æðstu stjórnar ríkisins og fellur sú vinnsla persónuupplýsinga utan gildissviðs laga nr. 90/2018, sbr. 6. mgr. 4. gr. laganna.
Hvað er gert við persónuupplýsingarnar og hversu lengi eru þær geymdar?
Upptökur úr myndavélakerfi eru geymdar í allt að þrjá mánuði. Myndefni geta verið varðveitt lengur vegna rannsóknar mála og atvika.
Réttindi einstaklinga
Einstaklingar geta átt rétt á að fá að skoða og fá afrit af myndefni af þeim nema aðrir hagsmunir vegi þyngra, svo sem hagsmunir annarra. Mat er lagt á beiðni hverju sinni. Beiðni um að fá að skoða myndefni má senda á [email protected].
Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins