1. Kerfisbundin einföldun regluverks fyrir íslenskt atvinnulíf

Markmið aðgerðarinnar er að einfalda regluverk sem varðar atvinnulífið án þess að það komi niður á þeim almannahagsmunum sem búa að baki viðkomandi löggjöf. Aðgerðin snýr m.a. að ýmsum beinum og óbeinum kostnaði sem fyrirtæki verða fyrir vegna laga, reglna og stjórnsýsluframkvæmdar sem hægt er að draga úr eða afstýra.

Þess verður gætt við upptöku og innleiðingu nýrra EES-reglna að þar sé ekki gengið lengra í íþyngjandi kröfum á atvinnulífið en nauðsyn krefur. Einföldun reglna sem nú er í undirbúningi innan Evrópusambandsins verður sett í forgang þegar kemur að upptöku í EES-samninginn og innleiðingu hér á landi. Jafnframt verður farið kerfisbundið yfir íslenskt regluverk að öðru leyti eftir þörfum. Gæðaeftirlit vegna nýrrar löggjafar og reglusetningar verður bætt, þ.m.t. verður hugað að hlutverki ráðgjafarnefndar um opinberar eftirlitsreglur.

Tímarammi: 2026-2027.
Ábyrgðarráðuneyti: Forsætisráðuneytið.
Framkvæmdaaðili: Öll ráðuneyti.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Einföldum regluverk.
Áætlaður kostnaður: Innan ramma.
Afurð: Mælanlegur og sýnilegur árangur um minni reglubyrði sem dregur úr eða kemur í veg fyrir kostnað fyrir íslenskt atvinnulíf, bæði gegnum innleiðingu nýrra gerða og endurskoðun eldri löggjafar.