Ferðaþjónusta
Þjóðhagslegt mikilvægi ferðaþjónustu hér á landi hefur aukist til muna samhliða hröðum vexti greinarinnar. Með auknum fjölda ferðamanna hafa tekjur þjóðarbúsins aukist og ný störf skapast í landinu. Spáð er áframhaldandi vexti í komum erlendra ferðamanna til Íslands. Hröðum vexti fylgja miklar áskoranir en í greininni felast mikil sóknarfæri samfélagsins til aukinnar hagsældar og jákvæðrar byggðaþróunar.
Starfsemi stjórnvalda á sviði ferðamála er víðtæk enda er atvinnugreinin í eðli sínu mjög víðfeðm og snertir mörg svið mannlegra athafna. Þannig koma öll ráðuneyti að ferðamálum með einum eða öðrum hætti. Ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar ber ábyrgð á ferðaþjónustu sem atvinnugrein. Sú starfsemi sem fellur undir atvinnuvega –og nýsköpunarráðuneytið er m.a. starfsemi Ferðamálastofu, Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða og Stjórnstöðvar ferðamála auk rannsókna á sviði ferðamála og markaðs - og kynningarmála ferðaþjónustunnar. Ýmiss konar önnur starfsemi sem tengist ferðaþjónustu fellur undir málefnasvið sem heyra undir önnur ráðuneyti, s.s. málefni þjóðgarða og friðlýstra svæða, löggæsla og vegagerð.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Lög um skipan ferðamála, nr. 73/2005Gjaldskrá Ferðamálastofu, nr. 725/2016Lög um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða, nr. 75/2011Reglugerð um starfsreglur Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða vegna styrkveitinga, nr. 20/2016Reglugerð um úthlutun styrkja úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða vegna átaks til uppbyggingar á ferðamannastöðum sumarið 2014Lög um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007Reglugerð um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 1277/2016Lög um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 65/2015Reglugerð um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 840/2015Lög um alferðir, nr. 80/1994Reglugerð um alferðir, nr. 156/1995Lykilaðilar
FerðamálastofaÍslandsstofaÁhugaverðir tenglar
Flugþróunarsjóður - AAAHeimagistingSafeTravelVakinnVisitIceland.comHæfnisetur ferðaþjónustunnarFréttir
Atvinnuvegaráðuneytið
24.06.2026
Atvinnuvegaráðuneytið
Sjónarhorn flakkarans sýnt í Vestmannaeyjum
12.05.2026
Atvinnuvegaráðuneytið
Atvinnuvegaráðherra úthlutar til 18 verkefna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða
30.04.2026
Atvinnuvegaráðuneytið
Skýrsla um eflingu náms í ferðaþjónustu
22.04.2026
Ferðaþjónusta