Öryggismál og samgöngur

Slysavarnarfélagið Landsbjörg vinnur að því að bæta öryggi ferðamanna með kynningu á vefnum safetravel.is, dreifingu á fræðsluefni til erlendra ferðamanna og eflingu forvarna vegna ferðalaga, sérstaklega að vetrarlagi.

Ferðamálastofa hefur gefið út leiðbeinandi reglur um öryggismál.

Þá þurfa allir þátttakendur í Vakanum, gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar, að setja sér öryggisáætlanir sem skiptast í fjóra þætti, áhættumat, verklagsreglur, viðbragðsáætlun og atvikaskýrslu.

Mælaborð
Sjá einnig: