Varða - Heildstæð nálgun áfangastaðastjórnunar
Varða er samstarfsverkefni á vegum atvinnuvegaráðuneytisins og umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.
Vörður eru merkisstaðir á Íslandi sem teljast einstakir á lands- eða heimsvísu. Meginaðdráttarafl þeirra eru náttúrufyrirbæri og/eða menningarsögulegar minjar sem mynda sérstætt landslag eða landslagsheildir.
Heitið byggir á þeim fjölmörgu vörðum sem finnast í íslenskri náttúru. Vörður geyma sögu og arfleifð. Þær eru hlaðnar úr staðarefni, tengjast umhverfinu, vísa veginn í átt að áfangastað og mynda leiðakerfi.
Vörður eru vel þekktar og eru hluti af ímynd landsins
Þær eru fjölsóttir áfangastaðir sem ferðamenn sækja allt árið um kring. Við umsjón þeirra er unnið að sjálfbærni á öllum sviðum, umhverfislegri, samfélagslegri og efnahagslegri. Staðirnir þurfa að sýna fram á langtímaskuldbindingu til þess að framfylgja skilgreindum viðmiðum við stjórnun og skipulagningu m.a. hvað varðar hönnun innviða, aðgengi, fræðslu, öryggi, álagsstýringu, stafræna innviði o.fl.
Vörður geta annars vegar verið staðir þar sem töluverðir innviðir eru þegar til staðar. Þar geta verið takmarkaðir möguleikar á því að breyta því sem þegar hefur verið framkvæmt sem og mynstur ferðahegðunar. Miklir efnahagslegir hagsmunir geta verið til staðar sem hafa byggst upp yfir tíma. Því er oft meiri áskorun (tæknilega, fjárhagslega og menningarlega) og tímafrekara að þróa þá í átt að Vörðum.
Vörður geta hins vegar verið staðir þar sem takmarkaðir eða engir innviðir eru til staðar. Á slíkum stöðum er tækifæri til að stýra þróuninni í sjálfbæra átt frá fyrstu stigum og byggja upp fjölbreytta upplifun með næmni fyrir staðaranda.
Hönnun merkisins byggir á sömu grunnstoðum og vörðurnar sjálfar. Í grunninn sýnir merkið form vörðu og táknar jafnvægi náttúru og mannvirkja, með vísun í íslenska arfleifð og mynstur. Áhersla var lögð á að merkið endurspeglaði sögu og sérstöðu þeirra ólíku merkisstaða á Íslandi, sem geta með tíð og tíma orðið Vörður. Hver varða er sjálfstæð, en jafnframt hluti af heild, sem varðar leið að áfangastað. Úr varð einstakt merki sem er í senn tímalaust, táknrænt og íslenskt. Brandenburg hannaði merki Vörðu.
Vörður verða markaðssettar til íslenskra og erlendra ferðamanna og er ætlunin að úr verði þekkt merki sem ferðamenn leita uppi við skipulagningu á ferðalögum sínum. Vörðum er ætlað að leiða ferðamenn áfram á leið sinni um landið.
Varða er skrásett vörumerki
Hönnun merkisins byggir á sömu grunnstoðum og vörðurnar sjálfar. Í grunninn sýnir merkið form vörðu og táknar jafnvægi náttúru og mannvirkja, með vísun í íslenska arfleifð og mynstur. Áhersla var lögð á að merkið endurspeglaði sögu og sérstöðu þeirra ólíku merkisstaða á Íslandi, sem geta með tíð og tíma orðið Vörður. Hver varða er sjálfstæð, en jafnframt hluti af heild, sem varðar leið að áfangastað. Úr varð einstakt merki sem er í senn tímalaust, táknrænt og íslenskt.
Heiðursmerki
Staðir sem eru Vörður mega nýta sér sérstakt heiðursmerki, sem er sýnilegt fyrir gesti. Þetta merki er ekki ætlað til notkunar utan svæðisins.
Vörður geta fengið heiðursmerkið sem skjöld, sem greyptur er í stétt eða göngustíg. Myndin hér til hliðar er dæmi um skjöld.
Vörður verða markaðssettar til íslenskra og erlendra ferðamanna og er ætlunin að úr verði þekkt merki sem ferðamenn leita uppi við skipulagningu á ferðalögum sínum. Vörðum er ætlað að leiða ferðamenn áfram á leið sinni um landið.
Varða er skrásett vörumerki. Eingöngu þeir staðir sem eru Vörður mega nota vörumerkið, samkvæmt samningi við menningar- og viðskiptaráðuneyti.
Nánari upplýsingar veitir [email protected].
Vinnustofur
Menningar- og viðskiptaráðuneytið hefur nú birt niðurstöður og tillögur franskra ráðgjafa sem heimsóttu Jökulsárlón, Gullfoss, Geysi og Þingvelli haustið 2021 í tengslum við Vörðu, verkefni um heildstæða stjórnun áfangastaða. Meðal þess sem ráðgjafarnir leggja til er að hlúa að sérstöðu og staðaranda hvers áfangastaðar, hafa innviði lágstemmda og huga að miðlun menningararfs.
Niðurstöðurnar byggja á vinnustofum sem ráðgjafarnir leiddu en þeir hafa unnið með álíka verkefni í Frakklandi sem kallast „Grand Sites de France.“
Auk ráðgjafanna og verkefnastjórnar Vörðu, sem samanstendur af fulltrúum menningar- og viðskiptaráðuneytis og umhverfis, orku og loftslagsráðuneytis, var lykilhagaðilum boðið að taka þátt í vinnustofunum þ.e. umsjónaraðilum staðanna, fulltrúum sveitarfélaga, áfangastaðastofu Suðurlands og rekstraraðilum þar sem við átti.
Markmið vinnustofanna var að máta áfangastaðina við hugmyndafræði og viðmið Vörðu og að fá utanaðkomandi álit ráðgjafanna á ástand og þróun staðanna með hliðsjón af reynslunni í Frakklandi. Vinnustofurnar voru tvískiptar. Annars vegar var farið í vettvangsheimsóknir þar sem rýnt var í staðhætti, landslag, skipulag og innviðauppbyggingu og áhrif þessara þátta á upplifunina af stöðunum. Hins vegar voru haldnir vinnufundir þar sem leitast var við að móta sameiginlega sýn fyrir staðina til framtíðar.
Niðurstöður og tillögur ráðgjafanna eru nú aðgengilegar hér fyrir neðan. Þær munu nýtast í áætlanagerð sem mun hjálpa stöðunum að færast nær hugmyndafræðinni sem unnið er samkvæmt, þannig að þeir geti orðið Vörður innan ákveðins tíma.
Niðurstöður vinnustofa
Tillögur og niðurstöður um hugmyndafræði VörðuSamantekt fyrir alla áfangastaðinaGeysir - samantektGullfoss - samantektJökulsárlón - samantektÞingvellir - samantektMyndböndin hér að neðan eru textuð á ensku.
Smella þarf á hnapp fyrir skjátexta á myndbandinu þegar spilun hefst.
Niðurstöður vinnustofa Vörðu 2021 og tillögur ráðgjafa
Aðferðafræði Grand Sites de France - dæmi frá Cap Fréhel
Sjá einnig:
Vörumerki
Varða er skrásett vörumerki. Eingöngu þeir staðir sem eru Vörður mega nota vörumerkið, samkvæmt samningi við ráðuneytið.
Nánari upplýsingar veitir [email protected].