1. Lífeyrissjóðum veitt aukið frelsi til fjárfestinga
Markmið aðgerðarinnar er að endurskoða lagaumgjörð lífeyrissjóða með hliðsjón af breyttum aðstæðum og styðja þannig við verðmætasköpun og framleiðnivöxt í hagkerfinu.
Gerðar verða breytingar sem miða að því að draga úr magntakmörkunum á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða þannig að þeir geti ráðstafað fjármagni með sveigjanlegri og skilvirkari hætti til fjárfestinga. Samhliða verður áfram lögð áhersla á trausta áhættustýringu, dreifingu eigna og langtímahagsmuni sjóðfélaga.
Tímarammi: Vor 2026.
Ábyrgðarráðuneyti: Fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Framkvæmdaaðili: Fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Samstarfsaðilar: Landssamtök lífeyrissjóða og Seðlabanki Íslands.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Eflum vísindi og nýsköpun; Einföldum regluverk.
Áætlaður kostnaður: Innan ramma.
Afurð: Lagasetning. Yfir lengri tíma verða áhrif mæld í auknum fjárfestingum lífeyrissjóða í nýsköpun.