1. Náttúru- og innviðagjald á ferðamannastöðum

Markmið aðgerðarinnar er að skapa skýra og sjálfbæra umgjörð um gjaldtöku á ferðamannastöðum í eigu eða umsjón ríkisins.

Sett verða ný heildarlög um gjaldtöku á ferðamannastöðum sem kveða á um gjaldskyldu, framkvæmd, umsýslu og eftirlit. Með lögunum verður komið á samræmdu og gagnsæju kerfi sem tryggir sanngjarnt og fyrirsjáanlegt afgjald fyrir nýtingu náttúru og innviða.

Tekjur munu standa undir uppbyggingu, viðhaldi, öryggi og vernd, auk þess að fjármagna kostnað ríkisins af ferðaþjónustu, m.a. við markaðssetningu og rannsóknum.

Tímarammi: Haust 2026.

Ábyrgðarráðuneyti: Atvinnuvegaráðuneytið.

Samstarfsaðilar: Fjármála- og efnahagsráðuneytið, forsætisráðuneytið og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Uppbygging um land allt; Auðlindir í allra þágu; Styrkjum innviði; Upplifun.

Áætlaður kostnaður: Innan ramma.

Afurð: Löggjöf. Árangur verður einnig metinn út frá því hversu vel innleiðing gengur og hvernig tekjur skila sér til uppbyggingar, viðhalds, öryggis og verndar.