1. STEM-áherslur í leik-, grunn- og framhaldsskólum

Markmið aðgerðarinnar er að efla áherslur á STEM-greinar í aðalnámskrám, viðmiðunarstundaskrám og námsbrautum í leik-, grunn- og framhaldsskólum.

Námskrár fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla verða endurskoðaðar með það að markmiði að leggja meiri áherslu á færni nemenda í STEM-tengdum námsgreinum. Jafnframt verða gerðar breytingar á viðmiðunarstundaskrá grunnskóla til að auka vægi STEM-greina til að skapa aukið svigrúm fyrir kennslu þeirra.

Að auki verða viðmið um einingafjölda í kjarnafögum og STEM-greinum í námi á framhaldsskólastigi endurskoðuð og gefnar út viðmiðunarnámsbrautir með sérhæfingu í STEM-greinum og heilbrigðistengdu námi. Gætt verður að samfellu á milli viðmiða á framhaldsskólastigi og háskólanáms í STEM-greinum. 

Mótuð verður betri og markvissari umgjörð um menntun og starfsþróun kennara í samstarfi við háskólasamfélagið og sveitarfélög. Sérstök áhersla verður lögð á að efla fagþekkingu kennara í STEM-greinum, meðal annars til að styrkja kennslu í náttúrufræði og stærðfræði á öllum skólastigum.

Núverandi framboð símenntunar og starfsþróunar verður greint og metið með það að markmiði að þróa árangursíkar aðferðir til að styðja við faglega þróun kennara.

Tímarammi: Endurskoðun verði lokið fyrir árslok 2026. Innleiðing breyttrar viðmiðunarstundaskrár og námsbrauta hefjist í áföngum í byrjun skólaárs 2027 –2028 og hafi verið að fullu lokið í byrjun skólaárs 2030–2031. 

Ábyrgðarráðuneyti: Mennta- og barnamálaráðuneytið.

Framkvæmdaaðili: Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Samstarfsaðilar: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Kennarasamband Íslands, skólasamfélagið og atvinnulífið.
 

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Tryggjum færni til framtíðar; Eflum vísindi og nýsköpun.

Áætlaður kostnaður: Kostnaður vegna endurmenntunar kennara 300 m.kr. á ári. 

Afurð: Endurskoðaðar aðalnámskrár leik-, grunn- og framhaldsskóla með meiri áherslu á STEM-tengdar námsgreinar. Fleiri kennarar með fagþekkingu í STEM-greinum.