10. Aðgengi að erlendum mörkuðum varið og bætt

Markmið aðgerðarinnar er að verja og bæta aðgang íslenskra útflytjenda að mörkuðum erlendis með markvissri hagsmunagæslu og þróun viðskiptasambanda.

Áhersla verður lögð á verkefni sem ætlað er að efla tvíhliða samskipti og ávinning af fríverslunarsamningum með hliðsjón af útflutningsstefnu stjórnvalda og atvinnulífsins, þar sem hagsmunir landsins kalla á sérstaka áherslu.

Á grundvelli samkomulags Íslands og Evrópusambandsins er stefnt að endurskoðun viðskiptakjara milli Íslands og ESB. Gætt verður að viðskiptahagsmunum gagnvart Bandaríkjunum og sótt fram á vaxandi mörkuðum, svo sem á Indlandi og í Mercosur-ríkjunum í Suður-Ameríku. Jafnframt verða viðskiptatengsl við Grænland og Færeyjar efld m.a. með gerð viðskiptasamnings við Grænland.

Tímarammi: 2026–2027.

Ábyrgðarráðuneyti: Utanríkisráðuneytið.

Framkvæmdaaðili: Utanríkisráðuneytið.

Samstarfsaðilar: Önnur ráðuneyti og fulltrúar atvinnulífsins.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Aukum aðgengi að erlendum mörkuðum.

Áætlaður kostnaður: Innan ramma.

Afurð: Bætt viðskiptakjör; viðskiptasamningar.