2. Einföld stjórnsýsla og regluverk í umhverfis- og orkumálum

Markmið aðgerðarinnar er að styðja uppbyggingu orkuinnviða með því að einfalda, samræma og þróa leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

Í aðgerðinni felast markvissar umbætur og einföldun leyfisferla sem varða uppbyggingu raforkuinnviða og aðrar innviðaframkvæmdir sem mikilvægar eru fyrir orkuskipti. Megináhersla verður lögð á að stytta málsmeðferðartíma, skýra ábyrgða- og verkaskiptingu og draga úr tvíverknaði milli stjórnvalda, án þess að gefið verði eftir í kröfum um vandaða málsmeðferð, náttúruvernd og gagnsæi.

Lagabreytingum sem þegar er unnið að verður fylgt eftir með frekari útfærslum og reglugerðarbreytingum til að tryggja að umbæturnar skili þeim árangri sem stefnt er að. Meðal verkefna er að innleiða notendamiðaða stjórnsýslu þar sem einn afgreiðslustaður leiðir samskipti við umsækjendur og samhæfir aðkomu þeirra stjórnvalda sem fara með leyfisveitingar.

Umhverfis- og orkustofnun verður falið að nýta heimildir til sameiningar leyfa, aukinnar notkunar bindandi umsagna og skýrari röð ákvarðana með áherslu á að hraða afgreiðslu leyfa. Við útfærslu aðgerðarinnar verður horft til þróunar regluverks í Evrópu, þar sem aukin áhersla er lögð á að hraða uppbyggingu orkuinnviða í þágu loftslagsmarkmiða og efnahagslegs öryggis.

Tímarammi: Haust 2026.

Ábyrgðarráðuneyti: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.

Framkvæmdaaðili: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Umhverfis- og orkustofnun.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Aukið áfallaþol; Samdráttur í losun; Auðlindir í allra þágu; Einföldum regluverk; Styrkjum innviði.

Áætlaður kostnaður: Innan ramma.

Afurð: Reglugerðarbreytingar sem leiða af sér mælanlegan og sýnilegan árangur sem felst í hraðari uppbyggingu orkuinnviða og styttri málsmeðferðartíma leyfisveitinga í umhverfis- og orkumálum án þess að rýra kröfur um umhverfisvernd og vandaða stjórnsýslu.