2. Einföldun stjórnsýslu og regluverks í ferðaþjónustu
Markmið aðgerðarinnar er að stuðla að einföldu og skýru starfsumhverfi og skilvirkri stjórnsýslu í ferðaþjónustu.
Ráðist verður í heildarendurskoðun á stjórnsýslu ferðamála og umsýslu opinberra sjóða með það að markmiði að draga úr tvíverknaði og einfalda og skýra regluverk. Helstu leyfisveitingar og samskipti fyrirtækja við stjórnvöld verða samræmd á einum stað. Eftirlit verður samhæft og skilvirkni aukin. Jafnframt verður lögð áhersla á öflun og miðlun grunngagna til að styrkja stefnumótun og samkeppnishæfni greinarinnar.
Tímarammi: Haust 2026.
Ábyrgðarráðuneyti: Atvinnuvegaráðuneytið.
Samstarfsaðilar: Viðeigandi stofnanir og hagaðilar.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Auðlindir í allra þágu; Einföldum regluverk; Upplifun.
Áætlaður kostnaður: Innan ramma.
Afurð: Úttekt á stjórnsýslu ferðamála og umbætur sem ráðist verður í á grundvelli hennar.