2. Skilvirkari miðlun sparnaðar
Markmið aðgerðarinnar er að bæta miðlun innlends sparnaðar til fjárfestinga og auðvelda einstaklingum og fyrirtækjum að taka þátt í verðmætasköpun og framleiðnivexti.
Þrátt fyrir hátt sparnaðarstig á Íslandi er tækifæri til að bæta miðlun sparnaðar þannig að hann nýtist betur til fjármögnunar fyrirtækja, þar á meðal nýsköpunar- og vaxtarfyrirtækja. Verkefnið felur í sér að auðvelda almenningi að fjárfesta með skilvirkum hætti.
Tímarammi: Vor 2027.
Ábyrgðarráðuneyti: Fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Samstarfsaðilar: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Eflum vísindi og nýsköpun; Einföldum regluverk.
Áætlaður kostnaður: Innan ramma.
Afurð: Lagasetning. Yfir lengri tíma verða áhrifin einnig metin með hliðsjón af aukinni beinni þátttöku almennings við fjármögnun fyrirtækja.