2. STEM-áherslur á háskólastigi

Markmið aðgerðarinnar er að fjölga brautskráðum nemendum með STEM-menntun á háskólastigi.

Aðgerðin beinist í fyrsta lagi að því að fjölga fagmenntuðum kennurum í STEM-greinum á öllum skólastigum í samstarfi við skólasamfélagið og sveitarfélög.  Áhersla verður lögð á aukna færni í STEM-greinum í kennaranámi og endurmenntun kennara, auk þess sem boðið verður upp á sveigjanlegar námsleiðir fyrir kennara sem vilja efla færni sína í umræddum greinum.  Framboð símenntunar og starfsþróunar verður aukið og endurskoðað, með það að markmiði að styðja við faglega þróun kennara. Áhersla verður lögð á að skapa hvata fyrir fólk með STEM-menntun á háskólastigi til að bæta við sig kennsluréttindum í viðkomandi greinum.

Í öðru lagi verður stuðningur aukinn við nýnema í STEM-greinum á háskólastigi, með undirbúningsnámskeiðum og sveigjanlegum námsleiðum. Unnið verður að því að styrkja grunnþekkingu, minnka líkur á brottfalli og auka samfellu á milli háskóla og framhaldsskóla, einkum á sviði STEM-greina.

Í þriðja lagi verða þróaðar leiðir í samstarfi við háskólana til að styrkja samstarf háskóla og atvinnulífs í STEM-greinum.

Tímarammi: 2026–2027.

Ábyrgðarráðuneyti: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.

Framkvæmdaaðili: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið.

Samstarfsaðilar: Samband íslenskra sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Tryggjum færni til framtíðar; Eflum vísindi og nýsköpun.

Áætlaður kostnaður: 200 milljónir á ári á gildistíma áætlunar.

Afurð: Fjölgun brautskráðra háskólastúdenta úr STEM-greinum.