3. Byggjum gervigreindarinnviði í þágu atvinnulífs og samfélags

Markmið aðgerðarinnar er að tryggja ábyrga og samkeppnishæfa uppbyggingu gervigreindarinnviða sem stuðli að aukinni framleiðni, verðmætasköpun og gæðum í opinberri þjónustu.

Verkefnið felur m.a. í sér fjárfestingu í reikniinnviðum og vélbúnaði í samstarfi hins opinbera og einkaaðila, með áherslu á gagnaöryggi, menningarlega sérstöðu og gervigreindarfullveldi sem tryggir örugg yfirráð yfir tæknilausnum og mikilvægum gögnum. Leitast verður við að tryggja að fjárfestingar í innviðum styðji jafnframt við þekkingaruppbyggingu og virðisaukandi starfsemi á Íslandi. Þá verður vinna hafin við þróun og rekstur íslensks mállíkans í samstarfi við alþjóðleg tæknifyrirtæki, með það að markmiði að styrkja stafræna notkun íslenskrar tungu, efla stafrænt þjóðaröryggi og bæta samkeppnisstöðu atvinnulífsins.

Tímarammi: 2026–2027.

Ábyrgðarráðuneyti: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Samstarfsaðilar: Forsætisráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið, undirstofnanir og fyrirtæki á sviði gervigreindar.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Styrkjum innviði; Eflum vísindi og nýsköpun; Nýsköpun og tækniþróun.

Áætlaður kostnaður: 1,1 ma.kr.

Afurð: Aukin fjárfesting í reikniinnviðum og vélbúnaði fyrir þróun og notkun gervigreindar, í samstarfi opinberra aðila og einkaaðila. Fyrstu áfangar í þróun á íslensku mállíkani.