3. Markaðssetjum Ísland sem ferðamannaland með skilvirkum hætti

Markmið aðgerðarinnar er að efla heilsársferðaþjónustu um land allt með markvissri og samræmdri opinberri markaðssetningu.

Ráðist verður í heildarendurskoðun á skipulagi, hlutverkaskiptingu og samningum um opinbera markaðssetningu Íslands sem áfangastaðar, með það að markmiði að skýra ábyrgð, auka samhæfingu og bæta nýtingu fjármuna.

Sett verða skýr árangursviðmið og gagnaöflun og greining efld til að styðja við markvissa markaðssetningu og samkeppnisstöðu Íslands á alþjóðlegum mörkuðum. Jafnframt verður metin raunþörf á fjármagni til að ná settum markmiðum.

Tímarammi: Haust 2026.

Ábyrgðarráðuneyti: Atvinnuvegaráðuneytið.

Samstarfsaðilar: Utanríkisráðuneytið, Íslandsstofa, Ferðamálastofa og áfangastaðastofur landshlutanna.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Uppbygging um land allt; Aukum aðgengi að erlendum mörkuðum; Upplifun.

Áætlaður kostnaður: Innan ramma.

Afurð: Endurskoðað skipulag markaðssetningar Íslands sem áfangastaðar.