3. Námsefni, kennsluleiðbeiningar og aðstaða til náms og kennslu í STEM-greinum

Markmið aðgerðarinnar er að auka framboð á vönduðu námsefni og námsgögnum og bæta aðstöðu til náms og kennslu í STEM-greinum. Sérstök áhersla verður lögð á að námsefni í STEM-greinum á framhaldsskólastigi verði nemendum að kostnaðarlausu. 

Aðgerðinni er ætlað að styðja við kennslu í STEM-greinum með afburða námsefni, kennsluleiðbeiningum og verkefnum sem tengjast íslenskum aðstæðum og framtíðarfærni. Námsefni og leiðbeiningar verða samræmd áherslum í aðalnámskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla. 

Í samstarfi við sveitarfélög verður unnið að uppbyggingaráætlun sem á að tryggja að nemendur á öllum skólastigum njóti góðrar aðstöðu til náms í STEM-greinum. Áhersla verður lögð á þróun kennsluaðferða í STEM-greinum og markvissa uppbyggingu STEM-vistkerfis, að fyrirmynd sambærilegra verkefna erlendis og í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki á sviði STEM.

Markmiðið er að gera STEM-nám aðgengilegt og framkvæmanlegt í skólum með því að styðja við kennara með tilbúnu efni, faglegum leiðbeiningum og fjölbreyttum verkefnum. Þá verður lögð áhersla á að efla framtíðarfærni nemenda, svo sem lausnamiðaða gagnrýna hugsun, upplýsingalæsi, tæknilæsi og ábyrga notkun tækni og gervigreindar.

Tímarammi: 2027.

Ábyrgðarráðuneyti: Mennta- og barnamálaráðuneytið. 

Framkvæmdaraðili: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, mennta- og barnamálaráðuneytið og sveitarfélögin. 

Samstarfsaðilar: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Kennarasamband Íslands, skólasamfélagið og atvinnulífið. 

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Tryggjum færni til framtíðar; Eflum vísindi og nýsköpun.

Áætlaður kostnaður: 300 m.kr. á ári á gildistíma aðgerðaáætlunarinnar.

Afurð: Aukið framboð á námsefni og námsgögnum sem bæta aðstöðu til náms og kennslu í STEM-greinum.