3. Skilvirkni við uppbyggingu innviða í flutnings- og dreifikerfi raforku

Markmið aðgerðarinnar er að tryggja framgang innviðaframkvæmda í flutnings- og dreifikerfi raforku með breytingum á raforkulögum sem varða aðgang að landi og eignarnám sem koma eiga í veg fyrir að ágreiningur stöðvi nauðsynlegar framkvæmdir.

Áhersla verður lögð á breytingar á lögum sem hafa að markmiði að samræma heimildir sérleyfisfyrirtækja (Landsnets og dreifiveitna) við heimildir fjarskiptafyrirtækja skv. lögum um fjarskipti. Með breytingunni verður landeigenda skylt að þola lagningu mannvirkja ef nauðsyn krefur, enda komi fullar bætur fyrir. Þá verður afnumið núverandi bann við að hefja framkvæmdir áður en samkomulag hefur náðst um endurgjald eða um eignarnám. Þess í stað verður lögfest að ágreiningur um bótafjárhæð eða lögmæti eignarnáms geti ekki hindrað framgang framkvæmda, enda hafi ráðherra veitt heimild til eignarnáms skv. 23. gr. raforkulaga og að framkvæmdaaðili hafi sett fullnægjandi tryggingu fyrir væntanlegum bótum. 

Tímarammi: Haust 2026.

Ábyrgðarráðuneyti: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.

Framkvæmdaaðili: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið í samstarfi við Umhverfis- og orkustofnun og Raforkueftirlitið.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Styrkjum innviði; Einföldum regluverk; Aukið áfallaþol; Auðlindir í allra þágu.

Áætlaður kostnaður: Innan ramma.

Afurð: Lagabreytingar sem tryggja framgang uppbyggingar flutnings- og dreifikerfis raforku, dregur úr töfum vegna ágreinings um landréttindi og auka fyrirsjáanleika, án þess að skerða rétt landeigenda til fullra bóta.