4. Fjölgun nemenda í iðn- og tækninámi
Markmið aðgerðarinnar er að fjölga nemendaígildum í iðn- og tækninámi á næstu árum.
Nýr 30.000 m² Tækniskóli verður reistur í Hafnarfirði sem mun stórbæta aðstöðu og efla iðn-, starfs- og tækninám á Íslandi. Reiknilíkan framhaldsskóla verður endurskoðað með það að markmiði að tryggja að námsframboð framhaldsskóla styðji við atvinnustefnu og samfélagsleg markmið, svo sem að fjölga iðn- og tæknimenntuðum, efla nám sem undirbýr nemendur undir STEM-nám á háskólastigi og efla nám í heilbrigðisgreinum á framhaldsskólastigi.
Samhliða verður fjárfest í uppbyggingu verknámsskóla víðs vegar um landið til að styrkja innviði iðn- og tæknimenntunar og bæta aðstöðu nemenda í nánu samstarfi við viðeigandi sveitarfélög.
Tímarammi: 2026–2027.
Ábyrgðarráðuneyti: Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Framkvæmdaaðili: Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Samstarfsaðilar: Framhaldsskólar og samtök aðila vinnumarkaðarins.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Tryggjum færni til framtíðar; Eflum vísindi og nýsköpun.
Áætlaður kostnaður: 500 m.kr. vegna nemendaaukningar.
Afurð: Árlegur fjöldi brautskráðra úr iðn- og tækninámi aukist. Bætt aðstaða verknámsskóla víðs vegar um landið.