4. Hagkvæm sérleyfisstarfsemi raforku
Markmið aðgerðarinnar er að tryggja að kostnaðar- og regluumhverfi sérleyfisstarfsemi í raforkukerfinu styðji við alþjóðlega samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og langtíma hagsmuni þjóðarbúsins.
Ráðist verður í gerð greiningar á samkeppnishæfni raforkuflutnings og dreifingar með hliðsjón af sérleyfisrekstri. Tilgangurinn er að stuðla að betri skilningi á samspili sérleyfisfyrirtækja og samkeppnisfyrirtækja og áhrifum þess á samkeppnishæfni atvinnulífsins. Greiningin tekur til helstu kostnaðar- og ábataþátta sérleyfisstarfseminnar, þar á meðal regluumhverfis, leyfisferla, arðsemiskröfu og annarra þátta sem hafa áhrif á gjaldskrár og fjármögnun innviða.
Greiningin mun jafnframt taka mið af stöðu flutnings- og dreifikerfa, skyldum þeirra samkvæmt raforkulögum, íslenskum aðstæðum og viðeigandi stefnum ríkisins, svo sem orkuöflunarstefnu, stefnu um uppbyggingu flutningskerfis, byggðaþróun og stefnu á sviði loftslagsmála. Niðurstöður greiningarinnar verða nýttar sem grunnur fyrir áframhaldandi stefnumótun og mögulegar breytingar á regluverki og framkvæmd með það að markmiði að efla samkeppnishæfni þjóðarbúsins til lengri tíma.
Tímarammi: Haust 2026.
Ábyrgðarráðuneyti: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
Framkvæmdaaðili: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið í samstarfi við Umhverfis- og orkustofnun og Raforkueftirlitið.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Styrkjum innviði; Einföldum regluverk; Uppbygging um land allt; Auðlindir í allra þágu.
Áætlaður kostnaður: Innan ramma.
Afurð: Greining á samkeppnishæfni sérleyfisstarfsemi í raforkukerfinu sem dregur fram helstu áhrifaþætti kostnaðar, ábata og regluumhverfis og leggur grunn að valkostum til að ná markmiðum aðgerðarinnar.