4. Skýr lagaumgjörð um ábyrgð, öryggi og aðgengi á skilgreindum landsvæðum

Markmið aðgerðarinnar er að skýra ábyrgð, öryggi og umgengni á ferðamannastöðum og öðrum skilgreindum landsvæðum, óháð eignarhaldi.

Mótaðar verða tillögur að fyrirkomulagi þar sem kveðið er á um heimildir til að afmarka slík svæði og skilgreina ábyrgð á rekstri og öryggi. Jafnframt verða sett skilyrði um öryggi og náttúruvernd, mótaðar leiðir til fjármögnunar nauðsynlegra innviða- og öryggisaðgerða og skýrar heimildir til gjaldtöku fyrir aðgang þar sem það á við.

Tímarammi: Haust 2027.

Ábyrgðarráðuneyti: Atvinnuvegaráðuneytið.

Samstarfsaðilar: Forsætisráðuneytið, dómsmálaráðuneytið, félags- og húsnæðismálaráðuneytið, innviðaráðuneytið og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Auðlindir í allra þágu; Styrkjum innviði; Einföldum regluverk; Upplifun.

Áætlaður kostnaður: Innan ramma.

Afurð: Skýrt skipulag um ábyrgð, öryggi og umgengni á ferðamannastöðum.