4. Stuðningur við nýsköpun á sviði kolefnisföngunar frá staðbundnum iðnaði
Markmið aðgerðarinnar er að hraða samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda frá staðbundnum iðnaði sem fellur undir ETS-kerfi Evrópusambandsins og styrkja samkeppnisstöðu íslensks iðnaðar í orkuskiptum og loftslagsumbreytingu.
Staðbundinn iðnaður stendur frammi fyrir vaxandi kröfum um samdrátt í losun og kolefnishlutleysi, samhliða vaxandi alþjóðlegri samkeppni. Aðgerðin felur í sér markvissan stuðning stjórnvalda við rannsóknir, þróun og innleiðingu tæknilausna til kolefnisföngunar við uppruna losunar. Lögð verður áhersla á samstarf við atvinnulífið, háskólasamfélagið og alþjóðlega aðila til að hraða þróun og prófun slíkra lausna.
Tímarammi: 2027.
Ábyrgðarráðuneyti: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
Framkvæmdaaðili: Loftslags- og orkusjóður.
Samstarfsaðilar: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Einföldum regluverk; Eflum vísindi og nýsköpun; Loftslag.
Áætlaður kostnaður: Innan ramma.
Afurð: Afurð aðgerðarinnar verður hagkvæm tækni sem dregur úr losun, nýtist á fleiri sviðum og styrkir samkeppnishæfni íslensks iðnaðar ásamt því að skapa ný tækifæri til verðmætasköpunar innanlands og á alþjóðavettvangi.