5. Aukin tækifæri til náms
Markmið aðgerðarinnar er að auka tækifæri til náms í takti við þróun samfélagsins. Í því felst að sveigjanlegum námsleiðum á mismunandi skólastigum verði fjölgað, fólki á vinnumarkaði gert auðveldara að bæta við sig þekkingu og færni auk þess sem auðveldara verði að fá færni úr starfi metna til styttingar náms eða réttinda.
Stofnað verður til nýs samstarfs stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um starfsþróun og símenntun til að mæta örum tæknibreytingum og þörfum samfélagsins til framtíðar.
Stutt verður við aukið framboð örnáms á háskólastigi og styttri námsleiðir á framhaldsskólastigi, m.a. með veitingu fjármagns til þróunar örnáms í samstarfi við atvinnulífið. Innleiddir verða hvatar í fjármögnunarlíkön skóla til að auka framboð örnáms og heimild opinberra háskóla til gjaldtöku vegna örnáms verður lögfest.
Umsýsla örnáms og raunfærnimats verður samræmd og settar fram skýrar leiðbeiningar um framkvæmd þess.
Tímarammi: 2026–2027.
Ábyrgðarráðuneyti: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið.
Framkvæmdaaðili: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið.
Samstarfsaðilar: Skólar og samtök aðila vinnumarkaðarins.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Tryggjum færni til framtíðar; Uppbygging um land allt.
Áætlaður kostnaður: 200 milljónir kr. árlega á gildistímabili aðgerðaáætlunar vegna eflingar örnáms, sí- og endurmenntunar á háskólastigi (MNH).
Afurð: Aukið framboð á örnámi og styttri námsleiðum á framhaldsskóla- og háskólastigi.