5. Bætt starfsumhverfi nýsköpunarfyrirtækja

Markmið aðgerðarinnar er að einfalda og styrkja laga- og skattalega umgjörð nýsköpunarfyrirtækja til að efla samkeppnishæfni Íslands og bæta aðgengi fyrirtækja að hæfu vinnuafli og fjármagni.

Regluverk verður endurskoðað, meðal annars um kauprétti, hlutdeild erlendra sérfræðinga og stjórnarmanna, skattskyldu hagnaðar erlendra aðila og VSK-skráningu sprotafyrirtækja. Jafnframt verða innkaupareglur ríkisins endurskoðaðar til að greiða leið fyrir nýskapandi hugmyndir og lausnir á markaði.

Afurðir aðgerðarinnar verða breytingar á regluverki sem ætlað er að bæta rekstrarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja, styðja við vöxt þeirra og alþjóðlega samkeppnishæfni.

Tímarammi: Vor 2027.

Ábyrgðarráðuneyti: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.

Samstarfsaðilar: Fjármála- og efnahagsráðuneytið, forsætisráðuneytið, Samtök iðnaðarins, Samtök atvinnulífsins, Rannís og Skatturinn.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Eflum vísindi og nýsköpun; Einföldum regluverk; Nýsköpun og tækniþróun.

Áætlaður kostnaður: Innan ramma.

Afurð: Lagasetning.